Þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 13.10 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Mættir voru Sigurður Brynjólfsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson, Jóhann P. Malmquist, Sven Þ. Sigurðsson, Kenneth Breiðfjörð, Andri H. Kristinsson og (nafn vantar). Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist
Samþykkt án athugasemda.
Lagt fram og rætt. Staðan er enn dálítið óljós því eftir er að bóka ýmsa reikninga og launatölur þóttu hæpnar. Miðað við upplýsingarnar í Oracle kerfinu er staðan þó viðunandi.
Fundur rektora norrænna tækniháskóla og fundur tengiliða í Nordtek samstarfinu var haldinn í Reykjavík 11. – 13. júní sl. Deildarforseti rakti helstu umfjöllunarefni.
R&t hefur auglýst tvö störf í skorinni.
Bráðabirgðatölur um nýnema sýna 53 í u&b, 86 í v&i, 40 í r&t, 5 í hugbúnaðarverkfræði og 36 í tölvunarfræði. Fækkað hefur um 30 frá því í fyrra og virðist þar eingöngu um fækkun í u&b að ræða. Rætt var um hertar reglur kennslusviðs varðandi nemendur sem ekki greiddu skráningargjöld vegna árlegrar skráningar í tæka tíð og hefur verið vísað frá námi af þeim sökum. Athugað verður hvort nemendur verkfræðideildar hafa lent í þessu.
Dreift var áætlun um þreyttar einingar skólaárið 2003-2004. Þreyttum einingum virðist fjölga í u&b og v&i en fækka í r&t og tölvunarfræði. Í heild fækkar þreyttum einingum lítillega frá 2002-2003.
Umsækjendur um auglýst starf í v&i voru tveir: Halldór Pálsson og Sigurður Thoroddsen. Skor leggur til að Páll Valdimarsson verði formaður dómnefndar og var það samþykkt einróma.
Einn umsækjandi var um auglýst starf í u&b: Þorsteinn Þorsteinsson. Samþykkt var einróma að Bjarni Bessason yrði formaður dómnefndar.
Deildarforseti rakti nýmæli í nýsamþykktum reglum um ráðningar og framgang. Reglurnar voru ræddar ítarlega og þar á meðal hvaða leið deildin ætti að fara við skipun dómnefnda eða valnefnda. Ákveðið var að fela deildar- og varadeildarforsetum að semja uppkast að sérreglum deildar og leggja fyrir næsta deildarráðsfund.
Á fjárhagsáætlun deildar voru veittar 9 miljónir til verkfræðistofnunar, með því skilyrði að stofnunin skilaði inn fjárhagsáætlun. Engin fjárhagsáætlun hefur borist. Málefni verkfræðistofnunar voru rædd vítt og breitt og komu fram ýmsar hugmyndir um skipulagsbreytingar. Að loknum umræðum var samþykkt að skipa nefnd sem á að leggja fram tillögu um nýtt skipulag stofnunarinnar á deildarfundi í byrjun ágúst.
Samþykkt var samhljóða að skipa Jóhann P. Malmquist, Jóhannes R. Sveinsson og Sigurð Brynjólfsson í nefndina.