237. deildarráðsfundur

Dagskrá:

Miðvikudaginn 25. maí 2004 kl. 12.30 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í stofu 258 í VR-II. Mætt voru Sigurður Brynjólfsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson, Helgi Þorbergsson, Sven Þ. Sigurðsson (kom 13.05), Andri H. Kristinsson og Hulda Hallgrímsdóttir. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.

Þetta gerðist

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt með þeirri breytingu að önnur setning í lið 5.7 orðist svo: "Í staðinn verði ekkert sumarpróf haldið."

2. Til kynningar

2.1 Fjárhagsyfirlit deildar

Lagt fram og rætt. Mönnum þótti ýmislegt í því orka tvímælis.

2.2 Reglur um viðmið og kröfur um gæði doktorsnáms í HÍ

Deildarforseti lagði fram reglurnar en þær voru til umræðu á háskólafundi 21. maí sl. Deildarforseti fór yfir efnisatriði reglnanna og rakti helstu athugasemdir sem gerðar voru við þær. Háskólaráð tekur reglurnar til samþykktar innan skamms.

2.3 Málstefna Háskólans

Dreift var málstefnu Háskólans sem samþykkt var á háskólafundinum 21. maí sl.

3. Stokkakerfi

Guðmundur R. Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrar- og framkvæmdasviðs, hefur lagt til að tekið verði upp samræmt stokkakerfi í Háskólanum frá og með næsta haustmisseri. Kennsla hefjist klukkan 8.15 á morgnana í stað kl. 8.00 núna en morgunkennslunni ljúki kl. 12.15, eða á sama tíma og núna. Þetta hefur í för með sér að fyrirlestrar styttast um 5 mínútur.

Eftir nokkrar umræður samþykkti deildarráð einróma þessar nýju tímasetningar.

4. Reglur um ráðningar og dómnefndir

Lögð voru fram til kynningar drög að nýjum reglum um ráðningar og dómnefndir og farið yfir helstu nýmæli í þeim.

5. Önnur mál

5.1 Meistaranefndir
Gísli Herjólfsson
Anna Soffía Hauksdóttir er umsjónarmaður, ásamt henni situr Jóhannes R. Sveinsson í nefndinni en fulltrúi deildar verði Jón Atli Benediktsson.
Unnur Björnsdóttir
Fjóla Jónsdóttir er umsjónarmaður, ásamt henni situr Halldór Pálsson í nefndinni en fulltrúi deildar verði Kristinn Ingason.
Þorvaldur Logi Pétursson
Hjálmtýr Hafsteinsson er umsjónarmaður, ásamt honum situr Kristinn Andersen í nefndinni en fulltrúi deildar verði Snorri Agnarsson.
Geir Ágústsson
Sigurður Brynjólfsson er umsjónarmaður, ásamt honum situr Fjóla Jónsdóttir í nefndinni en fulltrúi deildar verði Magnús Þór Jónsson.
Hafliði Jón Sigurðsson
Sigurður Brynjólfsson er umsjónarmaður, ásamt honum situr Fjóla Jónsdóttir í nefndinni en fulltrúi deildar verði Magnús Þór Jónsson.

Þessar nefndir voru einróma samþykktar.

5.2 Sjávarútvegs- og umhverfisstofnanir

Tillaga hefur verið lögð fram um það að sjávarútvegsstofnun og umhverfisstofnun verði sameinaðar í Auðlinda- og umhverfisstofnun Háskóla Íslands og heyri sú stofnun undir raunvísindadeild. Stofnunin verði auk þess rannsóknavettvangur í líffræði, landfræði og ferðamálafræði. Tillagan var send verkfræðideild til umsagnar. Deildarráð samþykkti þessa tilhögun fyrir sitt leyti en leggur áherslu á að námið við hina nýju stofnun haldist þverfaglegt hér eftir sem hingað til.

5.3 Umsóknir um meistaranám í sjávarútvegsfræðum

Lagðar voru fram þrjár umsóknir um meistaranám í sjávarútvegsfræðum innan verkfræðideildar. Vísindanefnd gerir tillögu um að gerð verði sú krafa til nemenda í sjávarútvegsfræðum við verkfræðideild að þeir taki a.m.k. fimm námskeið á meistarastigi við deildina, auk rannsóknarverkefnis.

Deildarráð samþykkti samhljóða að binda inntöku nemenda í sjávarútvegsfræðum þeim skilyrðum að þeir taki þrjú námskeið á meistarastigi við deildina, auk þeirra námskeiða sem forkröfur gera ráð fyrir.

5.4 Viðmið vísindanefndar um doktorsnám

Formaður r&t, sem einnig situr í vísindanefnd, lagði til að vísindanefnd tæki strax upp sem vinnureglu þau viðmið um gæði í doktorsnámi sem sett eru fram í ósamþykktum reglum Háskólans, sjá lið 2.2. Fundarmenn töldu ekkert mæla gegn því.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 14.05.