236. deildarráðsfundur

Dagskrá:

236. deildarráðsfundur verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginn 5. maí 2004, í stofu 257 og hófst kl. 12:20.

Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes Rúnar Sveinsson og Helgi Þorbergsson. Fulltrúar stúdenta: Kenneth Breiðfjörð, u&b og Andri H. Kristinsson r&t. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.

Mál á dagskrá:

1. Fundargerð síðasta fundar

Formaður rafmagns- og tölvuverkfræðiskorar mótmælti vinnubrögðum deildarforseta varðandi afgreiðslu fjármálanefndar háskólaráðs um heimild til að auglýsa kennarastörf við verkfræðideild, sbr. dagskrárlið 5 á síðasta fundi.

2. Til kynningar

2.1 Nordtek ráðstefna 12.-15. júní 2004.

Deildarforseti skýrði frá ráðstefnunni, dagskrá hennar og fyrirlesurum.

2.2 Bréf frá Verkfræðingafélagi Íslands.

Deildarforseti kynnti bréf frá Verkfræðingafélagi Íslands, dags. 19. apríl sl., þar sem lýst er stuðningi við hugmyndir um að auka stjórnunarlegt og fjárhagslegt sjálfstæði verkfræðideildar Háskóla Íslands með það að markmiði að efla starfsemi hennar.

2.3 Kynning á starfi Evrópsku geimferðarstofnunarinnar þann 13. maí nk. á Grand Hótel, kl. 10:30-12:00, sbr. bréf frá Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu.
2.4 HPC-Europa

Kynning á HPC-programmi Europea þar sem vísindamenn geta fengið ferða- og dvalarstyrki til að fá aðgang að supertölvu programmsins.

3. Endurmenntun – tilnefning í samstarfsnefnd

Samþykkt skv. tilnefningu skora, að eftirtaldir sitji í samstarfsnefnd verkfræðideildar og Endurmenntunarstofnunar: Birgir Jónsson fyrir umhverfis- og byggingarverkfræðiskor, Helgi Þór Ingason fyrir véla- og iðnaðarverkfræðiskor, Egill B. Hreinsson fyrir rafmagns- og tölvuverkfræðiskor og Oddur Benediktsson fyrir tölvunarfræðiskor.

4. Húsnæði (kennsla, framhaldsnemar, rannsóknir)

Miklar umræður urðu um húsnæðismál og húsnæðisþörf deildar vegna fjölgunar nemenda. Erindi kom frá umhverfis- og byggingarverkfræðiskor um að fá aftur stofu VR-352, en var hafnað. Í ljósi neitunar þess að umhverfis- og byggingarverkfræðiskor fær ekki aftur stofu 352 fer skorarformaður fram á að húsnæðismál skorar vegna meistaranámsins verði leyst.

5. Önnur mál

5.1 MS umsóknir

Lagðar voru fram umsóknir um meistaranám sem samþykktar hafa verið í vísindanefnd og skor. Annars vegar eru umsóknir sem samþykktar hafa verið án skilyrða og hins vegar með skilyrðum, sjá neðangreindan lista.

Umsóknir um meistaranám sem hafa verðið samþykktar í vísindanefnd og skor

U&b

Samþykkt án skilyrða:

Umsækjandi þarf að ljúka B.S.- prófi með lágmarkseinkunn 6,0:

Samþykkt með forkröfum:

R&t

Samþykkt án skilyrða:

Umsækjandi þarf að ljúka B.S.- prófi með lágmarkseinkunn 6,0:

Tölvunarfræðiskor

Samþykkt án skilyrða:

Umsækjandi þarf að ljúka B.S.- prófi með lágmarkseinkunn 6,0:

Samþykkt með forkröfum:

Samþykktar einróma að heimila ofangreindum nemendum að innrita sig í meistaranám með eða án skilyrða.

5.2 Rannsóknamisseri

Helgi Þorbergsson lagði fram svohljóðandi tillögu:

Kennarar geri grein fyrir því að þeir ætli að sækja um rannsóknamisseri fyrir gerð kennslu- og fjárhagsáætlunar þess árs sem sótt er um.

Tillagan var samþykkt einróma.

5.3 Námskeiðið„Tæknikerfi”

Tillaga um að Skúli Sigurðsson kenni námskeiðið Tæknikerfi á vegum verkfræðideildar vorið 2005, skv. lýsingu frá honum. Um er að ræða hliðstætt námskeið og Skúli kenndi á vegum véla- og iðnaðarverkfræðiskorar vorið 2002.

Að fenginni umsögn kennslumálanefndar deildar er lagt til að þetta námskeið verði ekki að svo stöddu kennt á vegum deildar, enda sé það ekki á verksviði hennar.

Samþykkt samhljóða, að það verði ekki kennt á vegum deildar.

5.4 Meistaranámsnefndir í tölvunarfræðiskor

Eftirfarandi meistaranámsnefndir voru samþykktar hjá neðangreindum fjórum nemendum:

Nemandi: Björg Aradóttir – 15e

„Framþróun á BráðaVá, viðmót og heimildir”
Ebba Þóra Hvannberg, leiðbeinandi
Hjálmtýr Hafsteinsson, meðleiðbeinandi
Jóhann P. Malmquist, fulltrúi deildar

Nemandi: Geir S. Jónsson – 30e

„A case study into the effects of software process improvement on product quality”
Oddur Benediktsson, leiðbeinandi
Gunnlaugur Þór Briem, meðleiðbeinandi
Helgi Þorbergsson, fulltrúi deildar

Nemandi: Gunnar Stefánsson – 30e

Sven Þ. Sigurðsson, leiðbeinandi
Jón Ágúst Þorsteinsson, meðleiðbeinandi
Snorri Agnarsson, fulltrúi deildar

Nemandi: Kristján Guðbjörnsson – 15e

Ebba Þóra Hvannberg, leiðbeinandi
Helgi Þorbergsson, meðleiðbeinandi
Oddur Benediktsson, fulltrúi deildar
5.5 Meistaranámsnefnd í rafmagns- og tölvuverkfræðiskor

Nemandi: Róbert A. Karlsson.

Jón Atli Benediktsson, leiðbeinandi.
Einar Stefánsson, meðleiðbeinandi.
Jóhannes R. Sveinsson, fulltrúi deildar.

Samþykkt.

5.6 Aukin fjárþörf rafmagns- og tölvuverkfræðiskorar

Formaður rafmagns- og tölvuverkfræðiskorar benti á þörf skorar fyrir auknar fjárveitingar á árinu 2004 þar sem fjórir kennarar skorar verða annað hvort í rannsóknamisseri eða barnsburðarleyfi.

5.7 Erindi frá tölvunarfræðiskor um aukapróf í námskeiðinu 08.73.11 Reiknirit, rökfræði og reiknanleiki, nú í maí

Tölvunarfræðiskor sækir um heimild til að skriflegt próf verði haldið í námskeiðinu 08.73.11 – Reiknirit, rökfræði og reiknanleiki, nú í maí. Í staðinn verði ekkert sumarpróf haldið. Samþykkt að halda skriflegt aukapróf nú í maí.

5.8 Gæðakerfi Háskóla Íslands

„Viðmið og kröfur um gæði doktorsnáms við Háskóla Íslands – Drög”. Deildarforseti dreifði greinargerð með samnefndum titli, sjá hér að ofan.

Fleira var ekki tekið fyrir á fundi.
Fundi slitið kl. 14:00.
Fundarritari:
Jón Guðmar Jónsson