Dagskrá:
Miðvikudaginn 7. apríl 2004 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Fundur hófst kl. 12.30. Mættir voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson og Helgi Þorbergsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Gísli Fannberg á kennslusviði Háskólans kynnti kröfur um framsetningu upplýsinga í ECTS samstarfinu og viðauka við prófskírteini (diploma supplement) sem á að fylgja öllum prófskírteinum Háskólans frá og með næstu brautskráningu. Á viðaukanum koma fram miklar upplýsingar varðandi námsfyrirkomulag og þarf verkfræðideild mjög bráðlega að ganga frá enskum texta sem lýsir námsbrautum deildarinnar.
Samþykkt án athugasemda.
Deildarforseti dreifði upplýsingum um átakið "Háskóli unga fólksins" sem felst í því að 14.-19. júní nk. verða boðin 20 námskeið ætluð 12-16 ára unglingum á ýmsum fræðasviðum.
Deildarforseti sagði frá umfjöllun um verkfræðideild í fréttabréfinu Verktækni sem nýlega er komið út.
25. apríl nk. er alþjóðlegi hugverkadagurinn. Elín R. Jónsdóttir, deildarstjóri hjá Einkaleyfastofunni, býðst til að halda erindi um þetta efni.
Deildarforseti sagði frá samstarfssamningi deildarinnar og Lagnafélags Íslands sem nýlega var gerður.
Borist hefur bréf frá menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn deildar um frumvarp til laga um Háskóla Íslands sem fjallar um dómnefndir og auglýsingar um störf. Óskað er svars fyrir 16. apríl nk.
Deildarforseti óskaði eftir því að hver skor tilnefndi einn fulltrúa í samstarfsnefnd Endurmenntunarstofnunar. Skorir greini frá tilnefningunni á næsta fundi.
Allar skorir settu ný störf í fjárhagsáætlun 2004. U&b óskar eftir að auglýst verði starf kennara í samgöngutækni, v&i hefur óskað eftir því að starf kennara í endurnýjanlegri orku verði auglýst og r&t óskar eftir auglýsingu á starfi í tölvuverkfræði. Rætt var um að auglýst yrði eftir lektori eða dósent og ráðið til þriggja ára. Samþykkt var að deildarforseti gengi frá orðalagi auglýsinga í samráði við viðkomandi skorarformenn.
Deildarforseti óskaði eftir stuttri greinargerð skorarformanna um húsnæðisþörf skora. Sótt er á húsnæði verkfræðideildar sem þarf að átta sig á stöðu húsnæðismálanna.
Umsóknir um meistaranám Samþykkt var samhljóða að veita eftirfarandi nemendum inngöngu í meistaranám, með skilyrðum vísindanefndar:Nokkuð er um að stúdentar, sem fara í skiptinám erlendis, óski eftir að taka þar grunnnámskeið á fyrsta ári. Formaður u&b skorar hefur lagt til að þessum beiðnum verði hafnað. Málið var rætt.