234. deildarráðsfundur

Dagskrá:

Miðvikudaginn 17. mars 2004 kl. 13.05 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Mættir voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Jóhannes R. Sveinsson, Helgi Þorbergsson, Ólafur Pétur Pálsson, Sveinbjörn Jónsson og Ari Björnsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt án athugasemda.

2. Til kynningar

2.1 Umsóknir í tækjakaupsjóð

Deildarforseti hvatti menn til að skila umsóknum í tækjakaupsjóð sem fyrst. Umsóknir deildar eiga að fara forgangsraðaðar til rannsóknasviðs 15. apríl nk.

2.2 Námshluti tekinn erlendis

Skv. yfirliti tóku 20% kandídata ársins 2003 einhvern hluta námsins sem skiptinemar erlendis.

2.3 Umsóknir um meistaranám við verkfræðideild

Óvenjumargar umsóknir hafa borist um meistaranám við deildina, þær eru nú 62.

2.4 Fjöldi nýnema og brautskráðir

Dreift var tölum um fjölda nýnema og fjölda kandídata. Um 40% nýnema ljúka námi og virðist hlutfallið ekki hafa hækkað frá því sem var í cand.scient.-náminu.

2.5 Reglur um dómnefndir

Lögð voru fram drög að nýjum reglum um dómnefndir og voru þau rædd nokkuð á fundinum en síðan vísað til umræðu í skorum.

2.6 Viðmið og kröfur um gæði framhaldsnáms við Háskóla Íslands

Drögum starfshóps á vegum háskólaráðs um þetta mál var dreift og þau rædd en því næst vísað til umfjöllunar í skorum. Málið verður tekið aftur upp á næsta deildarráðsfundi. Deildin á að gefa umsögn um drögin.

2.7 Vísindagarðar í Vatnsmýri

Dreift var efni úr erindi sem Ásgeir Brynjar Torfason flutti á nýsköpunarþingi 5. mars sl. og fjallaði um fyrirhugaða vísindagarða.

3. Nemendamál

Nemendur í námskeiðinu Hermun óska eftir því að próf verði flutt af 11. maí til 17. apríl. Eftir nokkrar umræður var beiðninni hafnað. Í framhaldinu var rætt um uppröðun prófa og tillögur nemenda þar að lútandi. Ákveðið var að halda áfram og ganga frá tillögum um niðurröðun námskeiða á prófdaga skv. stokkakerfinu.

4. Umsóknir um doktorsnám

Samþykkt var samhljóða að veita Sveini Margeirssyni inngöngu í doktorsnám við v&i. Guðmundur R. Jónsson verður leiðbeinandi en aðrir í umsjónarnefnd verða Jan Holst, Páll Jensson og Sigurjón Arason.

5. Stefna deildar, starfsáætlun, húsnæðismál

Deildarforseti lagði til að fylgt yrði framkvæmdaáætlun og deildin færi í úttekt á næsta ári. Nokkrar umræður urðu um stefnu deildarinnar og verður sú umræða á dagskrá næstu vikur. Þá var einnig rætt um húsnæðismálin en eðlisfræðingar hafa farið fram á að fá Vindgöngin undir tilraunaaðstöðu. Nemendur lýstu yfir áhyggjum af því að 3. árs stofur þeirra yrðu nýttar meira undir almenna kennslu ef gengið yrði á annað kennsluhúsnæði deildanna.

6. Önnur mál

6.1 Árleg skráning og skráningargjöld

Nemendur gagnrýndu að við árlega skráningu 22.-26. mars nk., er þeim gert að greiða innritunargjöldin strax og ekki gefinn greiðslufrestur. Deildarforseta var falið að koma gagnrýni á þetta fyrirkomulag á framfæri við sameiginlegu stjórnsýsluna.

6.2 Bilun í póstkerfi Háskólans

Samþykkt var að senda stjórn Reiknistofnunar harðorða kvörtun vegna þess að póstkerfi háskólans lá niðri allan sl. sunnudag og mánudag.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 14.00.