Dagskrá:
Fimmtudaginn 4. mars 2004 var fram haldið fundinum í deildarráði verkfræðideildar sem frestað var í gær. Fundur var settur kl. 12.40 í fundarherberginu í VR-II. Mættir voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson, Jóhann P. Malmquist, Helgi Þorbergsson og Einar Bjarni Halldórsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Deildarforseti lagði fram nýja útgáfu fjárhagsáætlunar 2004 og skýrði breytingar sem hann hafði gert frá útgáfunni sem kynnt var á fundinum í gær. Eftir nokkrar umræður var fjárhagsáætlunin samþykkt samhljóða. Skipting fjárveitinga milli rekstrarhluta deildarinnar er eftirfarandi: Almenn útgjöld 43.000 þ. U&b: 69.400 þ. V&i: 85.375 þ. R&t: 69.630 þ. Tölvunarfr.: 68.300 þ.
Í áætluninni er gert ráð fyrir 9 milj. króna framlagi til verkfræðistofnunar en því verður ekki ráðstafað fyrr en rekstraráætlun verkfræðistofnunar hefur verið lögð fyrir deildarráð.
Deildarráð samþykkti samhljóða að fastir kennarar þurfi að fá samþykki skorarformanns vegna kennslu sinnar utan skorar vegna fjárútláta sem henni fylgja.