Dagskrá:
Miðvikudaginn 3 mars 2004 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Fundur var settur kl. 13.00. Mættir voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson, Jóhann P. Malmquist, í fjarveru Helga Þorbergssonar, Ari Björnsson, Guillermo Cornejo og Einar Bjarni Halldórsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt án athugasemda, eftir nokkrar umræður um reglur um rannsóknamisseri og hvernig þeim er framfylgt.
Í gær var tveggja tíma kynning á framhaldsnámi við Háskóla Íslands. Deildarforseti sagði að aðsókn að básum verkfræðideildar hefði verið mikil, meiri en síðastliðin ár.
Bréf hefur borist frá forstöðumanni kennslusviðs þar sem óskað er eftir svörum við því hve deildin treysti sér til að taka við mörgum nemendum 2004-2005 miðað við kennslusamning við ráðuneytið og ramma deililíkans. Í bréfinu kemur einnig fram að engar undanþágur verði veittar frá inntökuskilyrðum háskólaárið 2004-2005 og ekki verði tekið við nýnemum um áramót. Eftir talsverðar umræður samþykkti deildarráð samhljóða að leggjast gegn takmörkunum á aðgangi að deildinni fyrst um sinn og hafa sama fyrirkomulag á inntöku nemenda og tíðkast hefur.
Deildarforseti lagði fram fjárhagsáætlun deildarinnar og skýrði hana. Tillaga deildarforseta felur í sér að fylgt er deililíkani deildar, sbr. umræður á síðasta deildarráðsfundi, með þeirri breytingu þó að fjárveiting til v&i er skert um 4,5 miljónir en fjárveiting hinna skoranna þriggja hækkuð um 1,5. Deildarforseti skýrði ýmsa liði áætlunarinnar og var málið rætt. Formaður v&i lét í ljósi óánægju með skerðingu á fjárveitingu til sinnar skorar. Fundi var frestað kl. 14.00 og verður honum fram haldið á morgun kl. 12.30-13.00 og á að afgreiða fjárhagsáætlunina á þeim fundi.