232. deildarráðsfundur

Dagskrá:

Miðvikudaginn 18. febrúar 2004 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í Tæknigarði. Fundur var settur kl. 12.30. Mættir voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson, Jóhann P. Malmquist, í fjarveru Helga Þorbergssonar, Sveinbjörn Jónsson, Ari Björnsson og Guillermo Cornejo og Einar Bjarni Halldórsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt án athugasemda.

2. Til kynningar

2.1 Rannsóknamisseri Egils B. Hreinssonar

Starfsmannasvið hefur tilkynnt að Egill eigi rétt á rannsóknamisseri vor og haust 2004.

3. Fjármál, staða og horfur, fjárhagsáætlun

Deildarforseti lagði fram

Miklar umræður urðu um fjármál deildar og deililíkan verkfræðideildar, sem er sniðið nákvæmlega eftir deililíkani háskólans. Ákveðið var að halda fund á sama tíma að viku liðinni, þegar fundarmenn hafa skoðað gögnin og nákvæmari upplýsingar liggja fyrir. Á fundinum á að taka fyrir fjárhagsáætlun 2004.

4. Önnur mál

4.1 Gagnrýni á skipan nefndar um verkfræðiháskóla

Deildarforseti hefur skipað nefnd sem vinna á tillögur um verkfræðiháskóla, sjá fundargerð 90. deildarfundar frá 4. febrúar sl. Nefndina skipa Sigurður M. Garðarsson, Páll Jensson, Anna Soffía Hauksdóttir, Jóhann P. Malmquist og Sigurður Brynjólfsson. Jóhannes R. Sveinsson gagnrýndi harðlega samsetningu nefndarinnar og taldi að hún væri of einsleit og ekki líkleg til að gera öllum sjónarmiðum jafnt undir höfði.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 14:05.