Dagskrá:
Miðvikudaginn 21. janúar 2004 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Fundur var settur kl. 12.30. Mættir voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson, Jóhann P. Malmquist, í fjarveru Helga Þorbergssonar, Sveinbjörn Jónsson og Ari Björnsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt án athugasemda.
Verkfræðideild hefur keypt 50 notendaleyfi að Maple hugbúnaðinum ásamt raunvísindadeild og viðskipta- og hagfræðideild. Verið er að setja hugbúnaðinn upp í tölvuverunum.
Deildarforseti kynnti bréf u&b þar sem m.a. eru lagðar til breytingar á nýtingu húsnæðis á 3. hæð VR-II.
Deildarforseti kynnti tillögur frá hjúkrunarfræðideild um framhaldsnám í upplýsingatækni á heilbrigðissviði. Eftir nokkrar umræður var málinu frestað til næsta deildarráðsfundar.
Þingmenn Samfylkingarinnar eru að kynna sér málefni Háskólans. Fulltrúar flokksins koma á fund deildarforseta og deildarráðs strax að loknum deildarráðsfundi, kl. 14.00
Fyrir liggur beiðni Egils B. Hreinssonar og Sigfúsar Björnssonar um rannsóknamisseri vor 2004 og Svens Þ. Sigurðssonar um rannsóknamisseri haust 2004 og vor 2005. Deildarráð samþykkti þessi rannsóknamisseri fyrir sitt leyti.
Skúli Sigurðsson býðst til að kenna námskeið um tæknisögu í verkfræðideild. Sven Þ. Sigurðsson reifaði málið. Eftir nokkrar umræður var ákveðið að senda erindið til kennsluskrárnefndar.
Óskað er eftir umsögn deildar um drög að reglum um starfsskyldur háskólakennara og sérfræðinga, sjá fundargerð síðasta deildarráðsfundar. Miklar umræður urðu um þessi drög og ný starfsheiti sem þar er kveðið á um. Að lokum var samþykkt að deildarforseti tæki saman umsögn sem hann kynnti fyrir skorarformönnum áður en hann sendi hana frá sér.
Eins og staðan er núna í uppgjöri ársins 2003 eru allar skorir með afgang nema tölvunarfræðiskor. Fjárveiting til deildar 2004 er 335,7 miljónir kr. sem er 7,4% hækkun frá síðasta ári.
Vísindanefnd hefur samþykkt að heimila Raul Shivasta að hefja meistaranám í tölvunarfræðiskor og Stefaníu Guðrúnu Halldórsdóttur að flytja meistaranám sitt úr u&b til tölvunarfræðiskorar. Deildarráð samþykkti þessar umsóknir fyrir sitt leyti.
Samþykkt var samhljóða að fulltrúar deildar í meistaranefndum yrðu þessir:
Lagður var fram til bókunar svohljóðandi samningur:
Reykjavík, 19.12.2003Undir samninginn rita Sigurður Brynjólfsson, Jóhannes R. Sveinsson og Ólafur Pétur Pálsson.
Að ósk forseta verkfræðideildar er rafmagns- og tölvuverkfræðiskor tilbúin að leyfa tímabundin afnot af herbergi 149 í VR-II, sem skorin hefur til umráða, fyrir Birgi Hrafnkelsson, kennara við véla- og iðnaðarverkfræðiskor. Birgir er ráðinn tímabundið við verkfræðideild til að leysa af Guðmund R. Jónsson, prófessor. Samningur þessi rennur út um áramótin 2004-2005.
Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 14:00.