Dagskrá:
Miðvikudaginn 10. desember 2003 kl. 12.30 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Mættir voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson og Helgi Þorbergsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt með orðalagsbreytingu.
LotusNotes og aðgangur að GoPro hefur verið sett upp á tölvu deildarforseta. Hann lagði til að skorarformenn og varadeildarforseti fengju þennan aðgang líka og að námskeið í notkun kerfisins yrði haldið eftir áramót. Þetta var samþykkt samhljóða.
Deildarforseti taldi að verkfræðideild ætti að stefna að ytra mati á starfsemi sinni sem fyrst, deildarráðsmenn tóku undir það.
Deildarforseti kynnti drög til háskólaráðs að nýjum reglum um starfsskyldur kennara, þar sem kveðið er á um skiptingu starfsskyldu lektora, dósenta og prófessora í kennslu, rannsóknir og stjórnun. Deildin þarf að skila umsögn um drögin fyrir 15. janúar nk. og var málinu vísað til umræðu í skorum. Nokkrar umræður spunnust um efnið og í framhaldinu um einkunnir og mismunandi einkunnagjöf kennara.
Minnt var á hlaðborð verkfræðistofnunar í hádeginu 18. desember nk. á Hótel Loftleiðum.
Deildarforseti, varadeildarforseti og skrifstofustjóri fóru á fund fjármálanefndar Háskólans á mánudaginn. Deildarforseti sagði frá því helsta sem þar bar á góma.
Árleg kynning á námi háskólanna á Íslandi verður haldin 14. mars nk. Verkfræðideild verður með kynningu sína í Náttúrufræðahúsinu nýja ásamt raunvísindadeild og læknadeild.
Dreift var uppdrætti af háskólasvæðinu með fyrirhuguðum staðsetningum bygginga í svokölluðu háskólatorgi. Deildarforseti rakti helstu hugmyndir sem nú eru á lofti varðandi þetta torg.
Dreift var yfirliti yfir stöðu deildar 9. desember. Staðan er góð en eftir er að gjaldfæra háa reikninga, t.d. frá Reiknistofnun. Deildarforseti hafði sent út tillögu um að aukafjárveiting skiptist með eftirfarandi hætti milli skora: U&b fengi 9.480 þ., v&i 5.260 þ., r&t 3.690 en af fjárveitingu tölvunarfræðiskorar sl. vor yrðu dregnar 5.210 þ. Eftir harðar umræður var tillaga deildarforseta samþykkt með þremur atkvæðum gegn atkvæðum fulltrúa tölvunarfræði- og r&t skora, fulltrúi u&b sat hjá.
Þrjár skorir hafa lagt fram kennsluáætlun 2004. Fjárhagsáætlunin var rædd, skorarformenn munu ganga frá kennsluáætlunum í ljósi niðurstöðunnar í síðasta dagskrárlið og leggja fram að nýju innan skamms.
Á fundinum var dreift lista yfir tímarit um verkfræði- og tölvunarfræðimál sem Landsbókasafn-háskólabókasafn kaupir. Samþykkt var samhljóða að sagt yrði upp þeim tímaritum á pappírsformi sem hægt er að nálgast á vefnum.
Greinargerðir um húsnæðisþörf hafa borist frá u&b og v&i. Hinar skorirnar voru beðnar að koma greinargerðum til deildarforseta sem fyrst.
Deildarforseti óskaði eftir að hver skor tilnefndi fyrir vikulok 1-2 menn í nýtt senat sem verður skipað innan tíðar.
Deildarforseti áætlar að taka starfsmannasamtöl við skorarformenn fyrir jól.
Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 14:20.