Dagskrá:
Miðvikudaginn 26. nóvember 2003 kl. 12.30 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Mættir voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson (í fjarveru Júlíusar Sólnes), Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson, Helgi Þorbergsson, Sveinbjörn Jónsson, Ari Björnsson, Einar B. Halldórsson og Guillermo Cornejo. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt með athugasemdum við 4. lið
Málþingið var haldið 13. nóvember sl. að frumkvæði senatsins. Deildarforseti rifjaði upp nokkur atriði sem þar var fjallað um. Menn virtust sammála um að ýmislegt gagnlegt hefði komið fram á þinginu og verður að umræðuefni á næstu deildarráðsfundum.
Deildarforseti var á fundi húsnæðisnefndar Háskólans fyrir skömmu. Þar var meðal annars rætt um tengibygginguna milli VR-II, VR-I og VR-III en framkvæmdir við hana gætu byrjað innan fárra ára. Rætt var hvort deildin ætti frekar að stefna að því að flytjast í vísindaþorpið í Vatnsmýri.
Dreift var yfirliti yfir stöðu deildar. Horfurnar eru allgóðar enn sem komið er en eftir er að bóka reikninga sem geta numið talsverðum upphæðum. Deildarforseti kynnti tillögu um að aukafjárveitingunni, sem getið er að ofan, verði skipt á milli skora í samræmi við núverandi kassalíkan og þreyttar einingar. Með því myndi heildarfjárveiting 2003 hækka hjá u&b, v&i og r&t en lækka hjá tölvunarfræðiskor. Miklar umræður urðu um fjármálin og skiptingu fjárveitingar.
Deildarforseti lagði fram texta að erindisbréfi vísindanefndar, kennsluháttanefndar og kynningarnefndar. Eftir stuttar umræður voru bréfin samþykkt með fáeinum breytingum.
Stúdentaráð spyr hvort hliðra megi tímasetningum í stokkakerfinu þannig að kennsla hefjist kl. 8.15 á morgnana í stað 8.00. Málið var rætt og voru menn sammála um að einfaldast væri að færa allar tímasetningar aftur þannig að morgunkennslu lyki kl. 12.30 í stað 12.15 núna, kennsla síðdegis héldist óbreytt, byrjaði kl. 13.15. Deildarráð sá ekki ástæðu til að leggjast á móti breytingu í þessa átt, að því tilskildu að aðrar deildir háskólans hefðu sama fyrirkomulag hjá sér.
Skorir voru beðnar að glöggva sig á húsnæðisþörf sinni næstu ár, bæði með tilliti til skrifstofa kennara, fjölda stúdenta og tilraunahúsnæðis. Deildarforseti brýndi fyrir mönnum að gera raunhæfar áætlanir um þörfina og taka tillit til þess að þörf sumra sviða fyrir húsnæði gæti minnkað en annarra aukist. Í framhaldi af þessu barst umræðan að fjöldatakmörkunum og leiðum til að koma þeim við svo deildin væri ekki að kenna fleiri stúdentum en hún fengi greitt fyrir. Málið verður tekið upp á næsta deildarráðsfundi.
Vísindanefnd hefur samþykkt umsóknir þeirra Sigurlínar Ingvarsdóttur og Lindu Kristínar Sveinsdóttur um inngöngu í meistaranám við v&i. Deildarráð samþykkti umsóknirnar fyrir sitt leyti.
Þá hefur vísindanefnd samþykkt með tilteknu skilyrð umsókn Ylfu Thordarson um að flytjast með meistaranám sitt frá u&b til v&i og samþykkti deildarráð þennan flutning fyrir sitt leyti, með skilmálum vísindanefndar.
Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 13:50.