228. deildarráðsfundur

Dagskrá:

228. deildarráðsfundur verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginn 12. nóvember 2003 í VR-II; stofu 257 og hófst kl. 12:20. Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson og Helgi Þorbergsson. Fulltrúar nemenda voru; Sveinbjörn Jónsson, u&b, Ari Björnsson, v&i og Einar B. Halldórsson, tölv. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.

Mál á dagskrá:

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt án athugasemda.

2. Til kynningar

2.1 Málþing Senatsins um verkfræðinám á Íslandi

Deildarforseti kynnti Málþing Senatsins sem haldið verður 13. nóvember að Engjateigi 9.

2.2 Málstefna Háskóla Íslands

Deildarforseti dreifði plaggi um „Málstefnu“ (tungumálastefnu) Háskóla Íslands“, dags. 20.10. 2003, sem rædd var á Háskólafundi 8. nóvember sl.

2.3 Siðareglur Háskóla Íslands

Dreift var siðareglum Háskóla Íslands sem samþykktar voru á Háskólafundi þann 8. nóvember sl.

2.4 Samstarfssamningur Háskóla Íslands/verkfræðideildar og Samskipa hf.

Deildarforseti kynnti samninginn. Samningurinn er undirritaður 4. nóvember 2003. Markmiðið með samstarfinu er að nýta þekkingu og krafta verkfræðideildar HÍ til framþróunar og nýsköpunar innan Samskipa, að kynnast nemendum og gefa nemendum kost á að kynnast starfsemi og hugmyndafræði Samskipa, auk þess að efla tengsl deildarinnar við atvinnulífið.

2.5 Drög að reglum um meistaranám í upplýsingatækni í heilbrigðissviði

Deildarforseti dreifði drögum að reglunum.

2.6 Sjúkra- og upptökupróf

Deildarforseti dreifði tölvupósti frá kennslustjóra þar sem minnst er á að próftímabilin séu tvö og að ágústprófin eru eingöngu sjúkra- og upptökupróf.

3. Fjármál

Rætt var um hvernig ætti að skipta viðbótarfjárveitingu vegan fjölgunar þreyttra eininga.

4. Samnýting eininga til margra gráða

Lagt fram bréf frá kennslustjóra um samnýtingu eininga til margra gráða.

Miklar umræður urðu um samnýtingu eininga.

Verkfræðideild hefur samþykkt að nemandi þarf að taka a.m.k. 30e við deildina af heildarfjölda eininga til B.S.-prófs og 15e af 60 einingum til meistaraprófs, til þess að fá prófgráðu frá deildinni.

Deildarforseti vísaði málinu til umræðu í skorum.

5. Nýskipan dómnefnda

Lagt fram „Minnisblað akademískrar stjórnsýslu til háskólaráðs“, um málið frá 25. júní 2003. Deildarforseti fór yfir einstaka lið minnisblaðsins og breytingar frá núverandi reglum.

6. Kennsla í Eðlisfræði 1 og 2

Rætt var um innihald námsefnis Eðlisfræði 1. og 2 og að taka upp viðræður við eðlisfræðiskor raunvísindadeildar um endurskoðun á námsinnihaldinu.

Málinu vísað til kennsluháttanefndar deildar.

7. Önnur mál

7.1 Mál meistaranema í tölvunarfræðiskor

Formaður tölvunarfræðiskorar kynnti mál þar sem fastur kennari skorarinnar hafði kennt einum nemanda í meistaranámi við skorina 5 eininga meistaranámskeið (lesnámskeið, án þess að skor hefði samþykkt námskeiðið.

Tillaga kom frá formanni umhverfis- og byggingarverkfræðiskorar um að nemandinn fái lesnámskeiðið samþykkt sem 3ja eininga námskeið.

Deildarráð samþykkti tillöguna með 4 atkvæðum gegn 2

7.2 Reglur um meistaranám

Formaður tölvunarfræöiskorar óskaði eindregið eftir því að reglur um meistaranám verði samþykktar sem fyrst.

Fundi slitið kl. 14:00.
Jón Guðmar Jónsson