Dagskrá:
227. deildarráðsfundur verkfræðideildar var haldinn í VR – 257 miðvikudaginn 29. október 2003, og hófst kl. 12:20.
Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson og Jóhann P. Malmquist. Fulltrúar nemenda voru; Guillermo Román, r&t og Sveinbjörn Jónsson, u&b.
Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.
Mál á dagskrá:
Samþykkt með breytingum á lið 7.1.
Bréf frá kennslusviði og fjárreiðusviði, dags. 22. október 2003, varðandi gerð Kennsluskrár 2004-2005 og fjárhagsáætlun fyrir árið 2004 – Verklag.
Lagt fram plagg frá Þórði Kristinssyni, framkvæmdastjóra akademískrar stjórnsýslu, varðandi samnýtingu eininga.
Véla- og iðnaðarverkfræðiskor leggur til að Magnús Þór Jónsson, prófessor, verði formaður dómnefndar um lektorsstarf í véla- og iðnaðarverkfræðiskor.
Deildarráð samþykkti tillögu skorar einróma.
Deildarforseti lagði fram drög að erindisbréfi fyrir Kennsluháttanefnd verkfræðideildar Háskóla Íslands. Drögin voru rædd.
Deildarforseti lagði fram drög að erindisbréfi Kynningarnefndar verkfræðideildar Háskóla Íslands. Drögin voru rædd.
Umræður urðu um fyrirkomulag og framtíð Senatsins.
Fyrirspurn kom frá fulltrúa nemenda um fyrirkomulag verklegrar kennslu í deildinni. Vísað til skora og einstakra kennara.
Fleira ekki tekið fyrir á fundi.
Fundi slitið kl. 14:00.
Jón Guðmar Jónsson
fundarritari