Dagskrá:
Miðvikudaginn 15. október 2003 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson, Helgi Þorbergsson, Einar Bjarni Halldórsson, Ari Björnsson og Sveinbjörn Jónsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson. Fundur var settur kl. 12.25.
Þetta gerðist:
Samþykkt með breytingu á framsetningu 3. og 5. liða.
Skipunartími senatsins er að renna út. Ákveða þarf hvert framhald þess yrði. Senatið hafði rætt um að enda störfin með því að standa að málþingi um verkfræðinám við Háskóla Íslands í október en málþinginu hefur verið frestað til 13. nóvember. Rætt var um efni slíks málþings og hverjir ættu að sækja það.
Dreift var samantekt á könnun á ýmsum viðhorfum nýnema í Háskólanum. Deildarforseti fór yfir helstu þætti könnunarinnar.
Dreift var yfirliti yfir stöðu deildarinnar miðað við 13. október sl. Útlitið er allgott en hins vegar er ekki búið að bókfæra nokkra allstóra reikninga, meðal annars frá Reiknistofnun.
Dreift var kafla úr frumvarpi til fjárlaga 2004 þar sem rakin er áætluð fjárveiting til háskóla. Fundarmenn lýstu áhyggjum sínum yfir því að fjárveiting til rannsókna hefði verið skorin niður þótt framlagið til Rannsóknasjóðs hefði verið aukið á móti.
Rektor óskar eftir hugmyndum deilda um hvernig þær myndu laga sig að fjárlagarammanum, t.d. með aðgangstakmörkunum, og hvernig þær myndu ráðstafa því fé sem þær gætu aflað með skólagjöldum. Miklar umræður urðu um þetta efni.
Véla- og iðnaðarverkfræðiskor hefur rætt stefnu skorarinnar og ýmis innri mál á skorarfundum undanfarið. Deildarforseti dreifði samantekt helstu hugmynda skorarinnar sem hann hafði heimfært á deildina og fór yfir helstu atriði. Eftir talsverðar umræður var málinu vísað til umfjöllunar í skorum.
Á næstunni verður boðaður sameiginlegur fundur deildarráðs og verkfræðistofnunar. Sá fundur átti að vera síðast en misfórst vegna fjarveru stjórnarformanns verkfræðistofnunar.
Fram var lögð tillaga tölvunarfræðiskorar um undanfara, kjarna og valnámskeið í meistaranámi í hugbúnaðarverkfræði. Formaður tölvunarfræðiskorar fylgdi málinu úr hlaði. Málið var talsvert rætt en að lokum vísað til umfjöllunar í skorum.
Samþykkt var samhljóða að Hjálmtýr Hafsteinsson tæki við af Oddi Benediktssyni sem fulltrúi tölvunarfræðiskorar í kennsluháttanefnd.
Tímabundið starf lektors við v&i í stað Guðmundar R. Jónssonar hefur verið auglýst og barst ein umsókn, frá Birgi Hrafnkelssyni. Til er dómnefndarálit frá stærðfræðiskor þar sem Birgir var dæmdur hæfur xxxx. V&i leggur til að þetta dómnefndarálit verði lagt til grundvallar og Birgir ráðinn í starfið. Eftir nokkrar umræður var þó ákveðið að óska eftir skipun dómnefndar og verður haldinn sérstakur deildarráðsfundur um það efni innan skamms.
Formaður r&t óskaði eftir að rætt yrði hvernig ætti að snúa sér í því þegar fastráðnir kennarar skiluðu ekki inn áætlun eða uppgjöri. Málið var rætt.