225. deildarráðsfundur

Dagskrá:

225 deildarráðsfundur verkfræðideildar var haldinn í Tæknigarði föstudaginn 3. október 2003, kl. 12:20. Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson og Helgi Þorbergsson. Fulltrúar nemenda voru; Einar Bjarni Halldórsson, töl, Ari Björnsson, v&i, , Guillermo Román, r&t og Sveinbjörn Jónsson, u&b. Stjórn Verkfræðistofnunar var boðin á fundinn, mættur var Guðmundur R. Jónsson. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt með breytingum 6. tl.

2. Tilkynningar

2.1 Nordtek – Styrkur frá rektor

Verkfræðideild hefur fengið 1,3 Mkr. styrk v/ Nordtek-þátttöku undanfarin ár, en verður líklega að greiða þennan kostnað sjálf, um 400 þús/ári í framtíðinni.

2.2 Styrkur til meistaranema frá Landsvirkjun

Deildarforseti skýrði frá því að Landsvirkjun hefði veitt þrjá styrki, alls 4,8 Mkr. (3 x 1,6 Mkr) til 3ja meistaranema hjá Páli Jenssyni.

2.3 Fundur með nýrri stjórn Verkfræðingafélagsins

Deildarforseti skýrði frá því að hann hefði hitt nýja stjórn Verkfræðingafélagsins.

2.4 Fundur með Senatinu 28. október n.k

Málþing, áætlað 28. október n.k., um framtíð verkfræðinnar. Hugmyndir um yfirskrift málþingsins eru m.a.: „Verkfræðiháskóli Íslands“, hugmyndir Verkfræðingafélagsins eða að rifja upp; Fjórskólahugmyndina, eða „Verkfræði í Háskóla Íslands“. „eða Verkfræði og Háskóli Íslands“. Óskað yrði eftir því að rektor H.Í. yrði meðal ræðumanna.

2.5 Samskipti sameiginlegrar yfirstjórnar við deildina

Þórður Kristinsson og Guðmundur R. Jónsson hittu deildarforseta til að ræða samskipti sameiginlegrar yfirstjórnar og deildar og hvernig bæta megi þjónustu við deildina.

3. MS-nefndir

Tillögur um stjórn í MS-nefndum.

Samþykkt samhljóða.

Samþykkt samhljóða.

4. Verkfræðideild – Verkfræðistofnun

Stefna, húsnæði, fjármál, samstarf, samvinna, skrifstofa .... Vegna fjarveru formanns stjórnar Verkfræðistofnunar var málinu frestað.

5. Önnur mál

5.1 Forkröfur námskeiða

Formaður u&b-skorar, Júlíus Sólnes, prófessor, varpaði fram tillögu um það að ákveðin námskeið, t.d. Stærðfræðigreining IB og Eðlisfræði I, væru forkröfur um áframhaldandi nám.

Málinu var vísað til skora með fyrirmælum að þær gerðu grrein fyrir forkröfum námskeiða fyrir næsta skólaár.

5.2 Erfið staða umhverfis- og byggingarverkfræðiskorar v/ kostnaðar v/erlendra nemenda

Formaður u&b-skorar skýrði frá erfiðri stöðu skorar, bæði fjárhagslega og faglega, þetta skólaár þar sem engir fyrirvarar væru í enskri útgáfu kennsluskrár og skor hefði þurft að kenna mjög fámenn námskeið sem væri dýrt. Skor hefði mótað tillögu sem þyrfti að komast inn í kennsluskrána á ensku, þannig að fram kæmi hvaða námskeið yrðu kennd:

  1. ár hvert.
  2. annað hvert ár.
  3. námskeið sem væru kennd með sérstakri samþykkt fyrirfram.
5.3 Hvenær stúdentum er heimilt að fara til útlanda sem Erasmus-stúdentar

Formaður u&b-skorar varpaði fram hugmynd um að nemendur við verkfræðideild, sem ætluðu að fara sem Erasmus-stúdentar, eða á annan hátt, þyrftu a.m.k. að hafa lokið 45e-60e, áður en þeir færu til útlanda í nám sem Erasmustúdentar en ekki 30e eins og nú er.

Fleira ekki tekið fyrir á fundi. Fundi slitið kl. 14:00.
Jón Guðmar Jónsson
fundarritari