Dagskrá:
Miðvikudaginn 17. september 2003 kl. 12.25 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson, Jóhann Malmquist, Ari Björnsson, Sveinbjörn Jónsson og Einar Bjarni Halldórsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt með lítilsháttar orðalagsbreytingu.
Borist hefur bréf frá formanni stærðfræðiskorar með ósk um að verkfræðideild skipi fulltrúa í prófanefnd skorarinnar. Málið verður afgreitt á næsta deildarráðsfundi.
Fundur senats verkfræðideildar var haldinn í gær. Senatið óskar eftir því að halda málþing um Verkfræðiháskóla Íslands í samvinnu við verkfræðideild og Verkfræðingafélag Íslands. Þingið verður haldið 23. október nk. Óskað var eftir hugmyndum um frummælendur á þinginu.
Dreift var yfirliti yfir stöðu deildarinnar miðað við ágústlok. Staðan var mikið rædd en reksturinn í heild stendur í járnum. Formaður u&b lét í ljósi óánægju með upplýsingar í enskri útgáfu kennsluskrár. Allmargir erlendir skiptistúdentar skráðu sig í námskeið skorarinnar sem ekki stóð til að kenna en vegna þess að fyrirvarar féllu út í ensku útgáfunni sá skorin sér ekki annað fært en að halda uppi kennslu í nokkrum þessara námskeiða. Af því leiðir að útgjöld skorarinnar verða hærri en áætlun gerði ráð fyrir.
Yfirliti yfir kennslu ársins 2003 hafði verið dreift til skorarformanna og verður litið á það sem áætlun um kennslu 2004.
Formaður r&t spurði hvernig ætti að taka á kennurum sem neiti að gera grein fyrir kennslunni sem þeir áætli að sinna. Málið var rætt og verða útbúnar reglur um verklag við kennsluáætlanir.
U&b óskar eftir heimild deildarráðs til að ráða í tvær nýjar stöður við skorina. Önnur staðan yrði á sviði samgöngutækni og vegagerðar, auglýst sem starf 100% lektors. Hin yrði á sviði byggingarvirkja, auglýst sem 100% dósentsstarf.
Samþykkt var að beiðnin um nýju störfin yrði felld inn í fjárhagsáætlunina 2004 og málið skoðað betur þegar marktækar útgjaldatölur liggja fyrir.
Formaður r&t minnti á að ætlast væri til að beiðnir um rannsóknamisseri væru staðfestar á deildarráðsfundum.
Fyrir nokkrum árum var samþykkt að kostnaður við ADSL-tengingar skiptist jafnt á milli skora og rannsóknarreikninga kennara. Deildarforseti lagði til að kostnaðurinn félli framvegis á verkfræðistofnun eina og var það samþykkt samhljóða.
Formaður r&t óskaði eftir svörum við ýmsum spurningum um verkfræðistofnun. Ákveðið var að verkfræðistofnun yrði aðalumræðuefni á næsta deildarráðsfundi.
Spurt var um húsgögn á opin svæði í VR-II. Deildarforseti velur húsgögn á þessi svæði úr sýnishornum sem honum verða send síðar í dag.