Dagskrá:
223. deildarráðsfundur verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginn 3. september 2003, í fundarherbergi 257 í VR-II og hófst kl. 12:20
Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson og Helgi Þorbergsson. Fulltrúi nemenda var Guillermo Román, r&t. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.
Samþykkt með breytingum á dagskrárlið 5.1.
Deildarforseti skýrði frá athugasemd sem borist hafði frá nemanda, við fundargerð deildarráðs frá árinu 1997, vegna forgangsröðunar nemenda í meistaranám. Persónuvernd hafði fengið erindið, og lögfræðingur rektors hafði fjallað um málið. Niðurstaðan í málinu er nú að forgangsröðun nemenda í meistaranám frá þessum tíma verður felld niður í vefútgáfu fundargerðar.
Deildarforseti minnti á fjárhagsstöðu deildar í Oracle-kerfinu og dreifði Fjárhagsyfirliti yfir jan.-ágúst.
Deildarforseti dreifði plaggi frá „MDB/ágúst 2003 – Drög“ um starfsmannasamtöl í deildum Háskólans.
Í nefndum deildar verða þessir:
a) Kennsluháttanefnd:
Sigurður Erlingsson, u&b
Ólafur Pétur Pálsson, v&i
Jón Atli Benediktsson, r&t
Oddur Benediktsson, töl.b) Vísindanefnd:
Bjarni Bessason, u&b
Fjóla Jónsdóttir, v&i
Jóhannes R. Sveinsson, r&t
Magnús Már Halldórsson, töl. (meðan Ebba Þóra er í rannsóknamisseri).c) Kynningarnefnd:
Trausti Valsson, u&b
Helgi Þór Ingason, v&i
Vilhjálmur Þór Kjartansson, r&t
Hjálmtýr Hafsteinsson, töl.
Umræður urðu um ráðningu í starf lektors við véla- og iðnaðarverkfræðiskor. Starfið yrði til tveggja ára með möguleika á framlengingu. Meginstarfið yrði einkum á sviði tölfræði og einnig stýritækni. Samþykkt var samhljóða að auglýsa starfið. Deildarforseta var falið að ganga frá og sjá um að starfsmannasvið auglýsi starfið. Umsóknarfrestur yrði til 1. október 2003.
Samþykkt var samhljóða að Magnús Þór Jónsson verði fulltrúi deildar í fjármálanefnd háskólaráðs og jafnframt samþykkt að Robert J. Magnus verði aðalfulltrúi sviðsins í nefndinni.
Formaður tölvunarfræðiskorar kynnti tillögur umsjónarkennara námskeiðsins „Uppbygging tölva“ um breytingu á kennslu í námskeiðinu, þannig að fjölgað yrði um tvær verklegar kennslustundir í viku í tölvuveri. Skorarformanni var bent á reglur deildar, þannig að ef fjölga á í verklegum tímum í námskeiði, þá þarf að fækka dæmatímum á móti.
Deildarráð lét bóka eftirfarandi mótmæli vegna kennslu í námskeiðinu Eðlisfræði 1.
„Deildarráð verkfræðideildar mótmælir harðlega þeim breytingum sem gerðar hafa verið á fyrirkomulagi kennslu í námskeiðinu Eðlisfræði 1 við raunvísindadeild. Deildarráð telur þær til vansa og að þjónusta við nemendur sé stórlega skert frá því sem var. Óskar deildarráð verkfræðideildar eftir leiðréttingu á þessu og að samráð verði haft við verkfræðideild þegar meiriháttar breytingar á kennsluháttum eru fyrirhugaðar í námskeiðum sem eru að miklum meirihluta sótt af verkfræðinemum“.
Jóhannes Rúnar Sveinsson vakti athygli á því, að ekki gengi það fyrirkomulag á Verkfræðistofnun í nýja Oracle-bókhaldskerfinu varðandi uppáskriftir/samþykkt reikninga, að einstakir sérfræðingar/kennarar hefðu ekki heimild til uppáskriftar sinna eigin rannsóknarreikninga.