Dagskrá:
Fimmtudaginn 14. ágúst 2003 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í stofu 258 í VR-II. Fundurinn var settur kl. 13.25. Mætt voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson, Helgi Þorbergsson, Ari Björnsson (v&i), Ása Andrésdóttir (r&t), Sveinbjörn Jónsson (u&b) og Einar Bjarni Halldórsson (t). Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt án athugasemda.
Vilhjálmur Sigurjónsson hefur verið ráðinn til deildarinnar frá og með 1. ágúst sl. í starfið sem Axel Sölvason gegndi áður.
Sumarhúsinu sem stúdentar hafa haft til umráða, verður breytt og útbúin þar aðstaða fyrir kennara og starfsmenn í raunvísindadeild. Verið er að skipta gamla fundarherberginu (stofu 248) í tvennt og gera að tveimur skrifstofum kennara. Fjóla og Ragnar Sigbjörnsson munu flytja þangað. Stofa 257 verður fundarherbergi í staðinn og meistaranámsstofan, V-261, verður notuð sem almenn kennslustofa og rúmar um 50 nemendur. Arkitekt hefur litið á húsnæði skrifstofa v&r og lagt fram hugmyndir að betri nýtingu rýmisins þar. Einar B. Pálsson, prófessor emeritus, hefur tæmt skrifstofu sína en Sigurður M. Garðarsson mun flytjast í hana.
Nýnemar hafa verið boðaðir á fund með deildarforseta og kennurum þriðjudaginn 26. ágúst kl. 13.30 í hátíðasal Háskólans.
54 nýjar umsóknir um meistaranám hafa borist frá síðasta misseri.
Dreift var yfirliti yfir stöðuna. Deildarforseti fór yfir ýmsa liði og skýrði. Margar spurningar voru lagðar fram um fjármálin og staðan í þeim mikið rædd.
Deildarforseti taldi upp ýmis verkefni sem lægju fyrir. Þar á meðal voru vefkerfi deildar og nýr búningur á því, skjalavistunarkerfið, skipun í nefndir deildar, tilfærsla námskeiða og vinna við fjármálin. Skipað verður í fastanefndir deildarinnar á næsta fundi.
Guðmundur R. Jónsson prófessor er tímabundið að taka við starfi í sameiginlegri stjórnsýslu Háskólans. V&i þarf að ráða kennara í stað Guðmundar. Málið verður tekið fyrir á næsta deildarráðsfundi.
Valdimar K. Jónsson lætur af störfum eftir rúmt ár en hefur gert samning við rektor og deildarforseta um ráðstöfun kennslu sinnar þetta tímabil. V&i óskar eftir að ráða fastan kennara í stað Valdimars.
Deildarforseti sagði frá því að betri stólar og borð yrðu sett á pallana á 2. og 3. hæð í VR-II.