Dagskrá:
221. deildarráðsfundur verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginn 22. maí 2003, í stofu VR-248 og hófst kl. 13:00.
Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson, Páll Valdimarsson, Jóhannes R. Sveinsson og Helgi Þorbergsson. Fulltrúi nemenda var Ari Björnsson, v&i. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.
Mál á dagskrá:
Samþykkt með breytingum á tl. 2.4.
Deildarforseti vakti athygli á því, að háskólafundur yrði föstudaginn 23. maí n.k.
Deildarforseti skýrði frá því, að hann hefði fengið heimild til þess að ráða í starf tækjavarðar. Las síðan upp drög að auglýsingu fyrir starfið.
Deildarforseta var falið að ganga frá auglýsingu í samráði við skorarformenn, um starfið.
Miklar umræður urðu um það hvaða skilyrði, auk faglegrar hæfni, prófdómari (fulltrúi deildar) í meistaraverkefnum við verkfræðideild þyrfti almennt að uppfylla. Í framhaldi af þeim umræðum samþykkti deildarráð eftirfarandi með fjórum samhljóða atkvæðum:
Deildarráð telur nauðsynlegt að prófdómari (fulltrúi deildar) í meistaraverkefnum hafi ekki áður komið að leiðbeiningu verkefnisins.
Fyrir fundinum lá tillaga frá Jóni Tómasi Guðmundssyni, dósent við rafmagns- og tölvuverkfræðiskor, um skipun prófdómara í tveimur meistaraverkefnum nemenda. Nemendurnir eru Kristinn B. Gylfason, þar sem lagt er til að dr. Sveinn Ólafsson, sérfræðingur á Raunvísindastofnun verði prófdómari og Ívar Meyvantsson, þar sem lagt er til að dr. Ragnar K. Ásmundsson, sérfræðingur á Raunvísindastofnun, verði prófdómari.
Deildarforseta var falið að fá staðfest hvort ofangreindir einstaklingar, uppfylla skilyrði ofangreindrar samþykktar. Ef svo er þá verða þeir skipaðir prófdómarar í ofangreindum verkefnum. Ef ekki, þá er deildarforseta falið, að tilnefna aðra prófdómara.
Skorarformaður, Birgir Jónsson, lagði fram yfirlit um MS-verkefni (auðkennd með vinnuheiti), prófdómara (tillögur) og leiðbeinendur, skv. tillögu leiðbeinandans Ragnars Sigbjörnssonar, prófessor. Um er að ræða þrjá nemendur í meistaranámi, sem stefna að útskrift í júní. Þeir eru: Aðalheiður Sigbergsdóttir, Albert Leó Haagensen og Marija Boskovic. Tillögur um prófdómara í verkefnum nemendanna þriggja eru:
Verkefni: Áhrif jarðskjálfta á lagnakerfi. Nemandi: Aðalheiður Sigbergsdóttir, B.S. Prófdómari: Sigurður Brynjólfsson, prófessor (véla- og iðnaðarverkfræðiskor). Leiðbeinandi: Ragnar Sigbjörnsson, prófessor. Aðstoð: Þorvaldur Jónsson, verkfræðingur hjá Orkuveitunni. Athugasemd: Verkefnið er styrkt af Orkuveitunni.
Samþykkt að Sigurður Brynjólfsson, prófessor, verði prófdómari.
Verkefni: Áhrif jarðskjálfta á byggingar. Nemandi: Albert Leó Haagensen, B.S. Prófdómari: Guðjón Sigfússon, verkfræðingur. Leiðbeinandi: Ragnar Sigbjörnsson, prófessor. Aðstoð: Sigbjörn Jónsson, verkfræðingur, byggingarfulltrúi. Athugasemd: Guðjón Sigfússon er starfandi ráðgjafarverkfræðingur á Selfossi. Hann hefur meistarapróf í jarðskjálftaverkfræði og mikla reynslu sem tengist m.a. jarðskjálftum á Suðurlandi í júní árið 2000.Sigbjörn Jónsson lagði góðfúslega til gögn og hugbúnað sem notaður var við úrvinnslu verkefnisins, m.a. myndir af skemmdum byggingum, byggingarnefndar- og verkfræðiteikningar og lýsingar á skemmdum.
Samþykkt að Guðjón Sigfússon verði prófdómari.
Verkefni: Áhættumat. Nemandi: Marija Boskovic, B .S. Prófdómari: Dr. Jens Bjarnason, verkfræðingur. Leiðbeinandi: Ragnar Sigbjörnsson, prófessor. Aðstoð: Sigbjörn Jónsson, verkfræðingur, byggingarfulltrúi. Athugasemd: Jens Bjarnason er með doktorspróf í byggingarverkfræði. Hann hefur meðal annars fengist við áhættumat fyrir mannvirki á jarðskjálftasvæðum.
Sigbjörn Jónsson lagði góðfúslega til gögn og hugbúnað sem notaður var við úrvinnslu verkefnisins.
Marija Boskovic hefur sýnt framúrskarandi hæfileika, hins vegar háir málið henni enn.
Samþykkt að Jens Bjarnason verði prófdómari.
Samþykkt að Haukur J. Eiríksson, M.S., verði aðjúnkt við umhverfis- og byggingarverkfræðiskor. Haukur er með Cand.Scient-próf frá verkfræðideild Háskóla Íslands og M.Sc. próf frá DTU og hefur starfað hjá dönskum verkfræði- og ráðgjafarstofum í um áratug á sviði steinsteypu- og spennuvirkja og undanfarin þrjú ár hjá verkfræðistofunni Hnit á þessu sama sviði.
Samþykkt að halda aukapróf í Fjarskiptaverkfræði þann 7. júní, kl. 9.-12. Tveir af þeim þremur nemendum, sem óska eftir því að prófið verði haldið, munu hugsanlega brautskrást nú í vor.