Miðvikudaginn 26. mars 2003 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Fundurinn var settur kl. 12.25. Mætt voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson, Páll Valdimarsson, Jóhannes R. Sveinsson, Helgi Þorbergsson, Árni Freyr Stefánsson, Brynja Sigurðardóttir, Guðmundur J. Kristjánsson og Helgi Friðmar Halldórsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Umræður urðu um það hvað deild eigi að gera kröfur um varðandi lágmarksfjölda eininga í B.S.-námi sem nemendur þurfa að taka til þess að brautskrást frá deildinni. Samþykkt að deildarforseti vinni að tillögu um viðveru í B.S.-náminu.
Deildarforseti kvað deildina mundu taka upp SoloWeb vefkerfið sem nýr vefur Háskólans byggist á. Útbúa þarf veftré verkfræðideildar í fyrstu atrennu. Deildarforseti lagði til að í nefnd um málið yrðu skipaðir þeir Trausti Valsson, Sigurður Brynjólfsson, Egill B. Hreinsson, Hjálmtýr Hafsteinsson og Pálmi Jóhannesson. Þetta var samþykkt samhljóða. Þá var stúdentum falið að tilnefna einn fulltrúa í nefndina.
Minnt var á að umsóknir í tækjakaupasjóð yrðu að berast sem allra fyrst til deildarforseta.
Félag prófessora hefur óskað eftir fundi með kennurum deildarinnar. Ákveðið var að halda opinn fund með bæði fulltrúm Félags prófessora og Félags háskólakennara í hádeginu á miðvikudaginn kemur.
Deildin hefur fengið 17 milj. kr. viðbótarfjárveitingu. Deildarforseti leggur til að fénu verði skipt þannig að u&b fái 717 þ., v&i 11.440 þ., r&t 2.814 þ. og tölvunarfræði 2.033 þ.
Eftir langar og snarpar umræður var borin upp dagskrártillaga um að mælendaskrá yrði lokað og greidd atkvæði um tillögu deildarforseta. Dagskrártillagan var samþykkt með 3 atkvæðum gegn engu. Tillaga deildarforseta var því næst borin upp og samþykkt með 5 atkvæðum gegn 3. Óskað var bókunar á því að tveir af þeim sem greiddu atkvæði gegn tillögunni væru skorarformenn.
Deildarforseti reifaði málið og kynnti drög að umsögn. Umsögn deildar þarf að liggja fyrir 5. apríl. Málið var töluvert rætt og ákveðið að deildarforseti breytti drögum sínum að umsögn með hliðsjón af umræðunum og sendi fundarmönnum í tölvupósti.
Deildarforseti lagði fram drög að reglum um þetta efni sem Hörður Filippusson deildarforseti raunvísindadeildar hefur tekið saman fyrir sína deild. Málið var rætt og deildarforseta síðan falið að ganga frá reglum um ritgerðirnar eða forskrift að þeim með hliðsjón af drögum Harðar Filippussonar og punktum sem Sigurður Brynjólfsson og Jóhannes R. Sveinsson höfðu tekið saman fyrir einum tveimur árum.
Miklar umræður urðu um þetta efni. Að lokum var samþykkt með 6 atkvæðum gegn 1 að enginn yrði brautskráður með B.S.-próf frá deildinni nema hann hefði lokið að minnsta kosti 30 einingum af námsframboði deildarinnar. Þá var samþykkt samhljóða að áskilja að a.m.k. 15 einingar í meistaranámi yrðu teknar við verkfræðideild.