218. deildarráðsfundur

Dagskrá:

218. deildarfundur verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginn 26. febrúar 2003, í stofu VR-258 og hófst kl. 12:20.

Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson, Páll Valdimarsson, Jóhannes R. Sveinsson og Helgi Þorbergsson. Fulltrúar nemenda, Árni Freyr Stefánsson, u&b, Guðmundur J. Kristjánsson, r&t og Brynja Sigurðardóttir, v&i. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.

Mál á dagskrá:

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt án athugasemda.

2. Tilkynningar

2.1 Kynning á framhaldsnámi

Deildarforseti minnti á framhaldsnámskynninguna á morgun, 27. febrúar 2003. Kynningin verður í hátíðarsal Háskólans kl. 16–18.

2.2 Námskeið fyrir stjórnendur

Deildarforseti minnti á námskeið fyrir stjórnendur, föstudaginn 7. mars n.k. á Þingvöllum, í Valhöll.

2.3 Tækjakaupasjóður

Sækja þarf um til deildar fyrir 15. mars n.k. og síðan þarf að vera búið að skila til Tækjakaupasjóðs fyrir 15. apríl n.k.

2.4 Kennslukannanir

Deildarforseti hvatti skorarformenn til þess að ræða niðurstöður kennslukannana í skorum. Ekki síst að vekja athygli á jákvæðum niðurstöðum könnunarinnar.

2.5 Háskólatorg

Deildarforseti kynnti hugmyndir Háskólans um „Háskólatorg“ bæði kostnaðaráætlun og tímaáætlun.

2.6 Meistaranemar

Deildarforseti dreifði lista yfir meistaranema. Þeir eru nú 105, 82 karlar og 23 konur.

2.7 Heimsókn rektors

Rektor heimsækir deildina á deildarfund þann 5. mars n.k. í Tæknigarði.

3. Stefna verkfræðideildar (Vísinda- og menntastefna Háskólans)

Deildarforseti mælist til að deildarráð/skorarformenn fari yfir vísinda- og menntastefnu Háskólans m.t.t. þess, hvernig stefnan samræmist hagsmunum deildar.

Einnig fór deildarforseti yfir drög/vinnuplagg um þróunaráætlun v&i-skorar og framtíðarsýn skorarinnar, og kynnti hana. Í framhaldi af nokkrum umræðum um vinnuplagg v&i-skorar bar formaður v&i-skorar upp tillögu um að umræður um plaggið yrðu teknar út af dagskrá. Var það samþykkt samhljóða.

4. Kröfur um viðveru við HÍ til að geta brautskrást frá deildinni

Umræður urðu um það hvað deild eigi að gera kröfur um varðandi lágmarksfjölda eininga í B.S.-námi sem nemendur „utan deildar“ (erlendir) þurfa að taka til þess að brautskrást frá deildinni.

Samþykkt að deildarforseti vinni að tillögu um viðveru í B.S.-náminu, en því var vísað til vísindanefndar deildar, að gera tillögu um „viðveru“ í meistaranáminu.

Fleira ekki tekið fyrir á fundi.
Fundi slitið kl. 13:30.
Jón Guðmar Jónsson