Miðvikudaginn 12. febrúar 2003 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Fundurinn hófst kl. 12:30. Mætt voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson, Páll Valdimarsson, Jóhannes R. Sveinsson og Jóhann P. Malmquist (í forföllum Helga Þorbergssonar). Fulltrúar nemenda: Árni Freyr Stefánsson og Brynja Sigurðardóttir. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt án athugasemda.
Árleg námskynning verður haldin 9. mars nk. Forsvarsmenn kynningarinnar hafa spurst fyrir um hvort verkfræðideild vildi vera í Íþróttahúsinu en þar fengi hún meira pláss en hingað til. Fundarmönnum leist flestum betur á að halda sömu aðstöðu og í fyrra. Deildarforseti ætlar að ráðgast við kynningarnefnd deildarinnar.
Deildarforseti hefur rætt prófamálin við prófstjóra og fleiri. Viðruð hefur verið hugmynd um að sjúkra- og upptökupróf verði haldin í byrjun júní í stað ágúst. Málið var rætt og var að heyra að vilji væri fyrir því í deildarráði að flytja prófin fram. Deildarforseti mun kanna málið betur og kynna það á næstunni.
Helgi Þór Ingason, lektor í v&i, hefur sótt um framgang í starf dósents og Símon Ólafsson, starfsmaður verkfræðistofnunar, sækir um fastráðningu sem sérfræðingur eða fræðimaður. Samþykkt var samhljóða að fulltrúi deildar í dómnefnd um Helga Þór yrði Pétur K. Maack og fulltrúi deildar um Símon yrði Júlíus Sólnes.
Deildarforseti gerði tillögu um eftirfarandi skiptingu fjárveitinga: Deild 29 m., u&b 54,8 m., v&i 77,3 m., r&t 61 m., tölv. 68,8 m. og verkfræðistofnun 10,2 m.
Páll Valdimarsson minnti á tillöguna um skiptingu kassa sem hann lagði fram á síðasta fundi. Hann dreifði samantekt á forsendum tillögunnar og útskýrði þær.
Tillaga Páls var borin undir atkvæði og felld með 3 atkvæðum gegn 1. Jóhann P. Malmquist sat hjá og gerði grein fyrir ástæðum þess.
Formaður r&t lýsti því yfir að hann myndi ekki samþykkja tillögu um skiptingu fjárveitinga sem fæli í sér framlag til verkfræðistofnunar. Tillaga deildarforseta var því næst borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum gegn 1.
Jóhannes R. Sveinsson gagnrýndi harðlega að verkfræðistofnun skipti ekki rannsóknafé í nokkru samræmi við rannsóknavirkni. Um þetta urðu miklar umræður og tóku fleiri undir að skoða þyrfti betur skipulagsmál í stofnuninni. Jóhannesi var falið að semja tillögu um úrbætur. Tillagan og mál stofnunarinnar verða rædd á sérstökum fundi deildarráðs um þessi efni.