216. deildarráðsfundur

Miðvikudaginn 29. janúar 2003 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Mætt voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Páll Valdimarsson, Jóhannes R. Sveinsson, Oddur Benediktsson (í forföllum Helga Þorbergssonar), Bjarni Bessason (í forföllum Birgis Jónssonar), Árni Freyr Stefánsson, Brynja Sigurðardóttir og Sveinbjörg Ingvarsdóttir. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson. Fundur var settur kl. 12.30.

Þetta gerðist:

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt án athugasemda.

2. Til kynningar

2.1 Skipan náms í hugbúnaðarverkfræði

Tölvunarfræðiskor hefur lagt fram tillögur um skipan námsins. Skorir voru beðnar að skoða tillögurnar og koma áleiðis athugasemdum, ef einhverjar væru.

2.2 Fjármál

Fjárveiting til deildar 2003 verður 301 miljón. Deildarforseti hefur verið boðaður á fund fjárveitinganefndar HÍ næstkomandi mánudag.

3. Upplýsingaþjónusta Háskólans

Rektor var falið að leita að nýjum rekstrargrundvelli fyrir upplýsingaþjónustuna. Hugmyndir hafa komið fram um að flytja hana til deilda Háskólans, stofnana eða Ríkisspítala-Háskólasjúkrahúss. Verkfræðideild sér sér ekki fært að taka við þessari starfsemi og telur aðrar stofnanir betur fallnar til þess, t.d. Landsbókasafn-Háskólabókasafn.

4. Sjúkra- og upptökupróf í febrúar

Nemendur úr nokkrum skorum hafa óskað eftir því að sjúkra- og upptökuprófum verði flýtt og þau haldin skömmu eftir misserisprófin frekar en í ágúst. Málið var rætt ítarlega á fundinum og að lokum var skipuð nefnd með þeim Sven Þ. Sigurðssyni, Sigurði Brynjólfssyni og Brynju Sigurðardóttur til að semja tillögur og leggja fyrir næsta deildarráðsfund. Ákveðið var að fresta sjúkra- og upptökuprófum í námskeiðum sem nemendurnir sóttu um að yrðu haldin í febrúar þar til ljóst er hvort þeir ná að brautskrást.

5. Fjárveitingar og fjárhagsáætlun

Deildarforseti dreifði deililíkani fyrir verkfræðideild 2003 og skýrði það. Páll Valdimarsson hefur skoðað skiptingu námskeiða og kostnaðar mjög ítarlega og lagði, með hliðsjón af því, fram tillögu um að skipting á kössum milli skora yrði: B: 100, V: 130, R: 100, T: 90.

Miklar umræður urðu um þessi mál. Deildarforseti og varadeildarforseti munu ræða við hvern skorarformann fyrir sig og verður síðan haldinn sameiginlegur fundur þeirra á miðvikudaginn kemur.

6. Önnur mál

6.1 Hugbúnaðarverkfræði

Tillögur að skipulagi námsins höfðu verið sendar til deildarmanna. Oddur Benediktsson lýsti þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru á náminu og rökunum fyrir þeim.

6.2 Meistarapróf Ingimundar Ásgeirssonar

Leiðbeinendur eru Guðmundur R. Jónsson og Tómas Philip Rúnarsson. Lagt er til að fulltrúi deildar verði Ólafur Pétur Pálsson. Þetta var samþykkt samhljóða.

Fleira gerðist ekki. Fundi slitið kl. 14.20.