215. deildarráðsfundur verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginnn 15. janúar 2003 og hófst kl. 12:20 í VR-248.
Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson, Páll Valdimarsson, Jóhannes R. Sveinsson og Helgi Þorbergsson. Fulltrúar stúdenta, Guðmundur Jónatan Kristjánsson r&t, Árni Freyr Stefánsson u&b, Brynja Sigurðardóttir v&i og Gunnar Már Gunnarsson töl. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.
Mál á dagskrá:
Fjárveiting til deildar er 299 mkr.
Deildarforseti skýrði frá því að hann sæti fundi með forstöðumönnum og sérfræðingum rannsóknastofnana um hátæknirannsóknir.
Rektor hefur óskað eftir því að heimsækja deild í byrjun febrúar.
Fengist hefur 4 mkr. styrkur frá NORFA til að halda námskeið fyrir meistara- og doktorsnema, sérstaklega tengt orkugeiranum. Gera má ráð fyrir 40-50 nemendum.
Deildarforseti óskaði eftir ábendingum/greinargerð frá skorarformönnum um starfið framundan, sérstaklega um húsnæðismálin.
Kynning í framhaldsskólum verður nú í lok janúar. Sérstök áhersla verður lögð á kynninguna. Gert verður ráð fyrir því að funda fyrst með sviðsstjórum framhaldsskóla og í framhaldi af því að funda með námsráðgjöfum sömu skóla.
Rætt var um hvort ætti að einbeita sér að sérstökum sviðum og námsframboði fyrir erlenda meistaranámsnema. Umræða um þetta þarf að fara fram í skorum og óskaði deildarforseti eftir því að það yrði gert sem fyrst.
Deildarforseti lagði fram fjárhagsyfirlit og uppgjör vegna ársins 2002 og skiptingu á fjárveitingu ársins 2003 frá fjármálanefnd háskólaráðs. Deildarforseti gerð grein fyrir og skýrði samsetningu fjárveitinga ársins 2003, sérstaklega skýrði hann fjárveitingar til rannsókna.
Útkoma ársins 2002 og fjárhagsstaðan í árslok 2002 er ásættanleg en horfur fyrir árið 2003 eru ekki bjartar, að óbreyttu.
Fjárveiting fyrir árið 2002 var 258 mkr. (án aukafjárveitingar) og sértekjur 17 mkr. en útgjöld 299 mkr. Fjárhagsstaða í upphafi árs var 10 mkr. en áætluð staða í árslok 2002 er 13 mkr.
Fjárhagsáætlun á að skila til fjármálanefndar háskólaráðs fyrir 27. janúar næstkomandi.
Eftirtaldir nemendur hafa sótt um meistaranám til viðbótar þeim sem þegar hafa verið samþykktir. Umsóknir, sem ekki hafa verið samþykktar í deild:
Véla- og iðnaðarverkfræðiskor Cand.Scient. í vélaverkfræðiÞessir nemendur voru samþykktir einróma
.Deildarforseti lagði til að Magnús Þór Jónsson yrði fulltrúi í fjármálanefnd háskólaráðs. Samþykkt einróma.