213. deildarráðsfundur

213. deildarráðsfundur verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginnn 13. nóvember 2002 og hófst kl. 12:15 í VR-248.

Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Páll Valdimarsson, Jóhannes R. Sveinsson og Helgi Þorbergsson. Fulltrúar stúdenta þeir Finnur Friðrik Einarsson v&i, Guðmundur Jónatan Kristjánsson r&t og Árni Freyr Stefánsson u&b. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.

Mál á dagskrá:

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt án athugasemda.

2. Tilkynningar

2.1 Vísindadagar 2002

Vel þótti takast til með Vísindadaga af hálfu verkfræðideildar.

2.2 Jafnréttismál

Deildarforseti rifjaði upp fjölmennan fund í vikunni með jafnréttisfulltrúa Háskólans, um nám kvenna í verkfræði og raunvísindum.

2.3 Efnaverkfræði

Stjórn menntamálanefndar verkfræðingafélagsins hefur komið með fyrirspurn um það hvernig námi í efnaverkfræði við HÍ verði háttað í framtíðinni. Deildarforseti, ásamt formanni vísindanefndar deildar, munu fara í málið og sitja fund með stjórn verkfræðingafélagsins um málið og ýmsa aðra þætti námsins í verkfræðideild.

2.4 Reiknistofnun háskólans

Deildarforseti skýrði frá því að hann hefði sent Reiknistofnun bréf varðandi þjónustu stofnunarinnar við verkfræðideild Háskóla Íslands.

3. Deililíkan/reiknilíkan

Deildarforseti kynnti plagg frá fjármálanefnd háskólaráðs til ráðsins; ãMinnisblað um breytingar á deililíkaniÓ (12.11.2002).

4. Húsnæðismál (m.a. drög að breytingu á VR-III, sbr. teikningu sem dreift var til kennara)

Deildarforseti kynnti/dreifði teikningu með drögum að breytingum á VR-III til að bæta nýtingu hússins til kennslu og rannsókna í þágu verkfræði- og raunvísindadeilda. Um er að ræða 2 ´ 200 m2 skála um 400 m2. Áætlaður kostnaður við breytingar er 45 Mkr. Þessar tillögur eru í vinnslu og gætu komið til framkvæmda eftir 1-2 ár.

5. Framhaldsnámsnemar (nýjar umsóknir)

Umhverfis- og byggingarverkfræðiskor
Tveir nemendur: Véla- og iðnaðarverkfræðiskor
Tveir nemendur:

Ofangreindir nemendur voru samþykktir í MS-nám með fyrirvara um þau skilyrði sem vísindanefnd deildar setur. Miklar umræður urðu um reglur og ferlið varðandi umsóknir um framhaldsnám við deildina. Breytingar á reglum um framhaldsnám eru í vinnslu hjá vísindanefnd deildar.

6. Önnur mál

6.1 Háskólabíó

Formaður tölvunarfræðiskorar vakti athygli á því að miðlæg yfirstjórn Háskólans væri búin að ráðstafa Háskólabíói í fyrstu viku kennslu haustið 2003, án samráðs við deildina, til ráðstefnuhalds (NORDUNET).

6.2 Netþjónusta Reiknistofnunar

Netþjónusta virkar illa. Netið, tölvupóstur o.fl., virkar illa frá því í haust. Deildarforseta falið að kvarta við yfirstjórn Reiknistofnunar.

Fleira ekki tekið fyrir á fundi.
Fundi slitið kl. 13:30.

Jón Guðmar Jónsson
fundarritari