211. deildarráðsfundur

211. deildarráðsfundur verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginn 16. október 2002 kl. 12:15 í VR-248. Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Júlíus Sólnes, Ólafur Pétur Pálsson, Jóhannes R. Sveinsson, Helgi Þorbergsson. Fulltrúar nemenda, Guðmundur J. Kristjánsson, (VIR), Árni Freyr Stefánsson, (Naglarnir) og Brynja Sigurðardóttir, v&i. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.

Mál á dagskrá:

1. Fundargerð síðasta fundar.

Samþykkt með breytingum í lið 6.1

2. Tilkynningar

Minnt á umsóknir um Fulbright-kennara.

3. Fjárhagsstaðan

Deildarforseti gerði grein fyrir stöðunni og horfum til áramóta. Staðan er í járnum miðað við væntanlega viðbótarfjárveitingu vegna þreyttra eininga. Stefnt er að tilnefningu fulltrúa verkfræðideildar sem varamanni í fjármálanefnd Háskólans á næsta deildarráðsfundi.

4. Inntökuskilyrði í deildina

Deildarforseti gerði grein fyrir erindi og reglum Menntamálaráðuneytisins vegna ákvörðunar ráðuneytisins um að bjóða nemendum framhaldsskóla að taka samræmt stúdentspróf í stærðfræði, ensku og íslensku og hvort það skipti máli varðandi inntökuskilyrði í verkfræðideild hvort nemendur verði með samræmd stúdentspróf. Deildin tekur ekki afstöðu á þessu stigi til til þess, hvort hún muni krefjast samræmds stúdentsprófs í framtíðinni af nemendum sem hyggjast hefja nám í deildinni. Verkfræðideild mælir samt með því, að nemendur sem ætla að hefja nám í verkfræðideild taki samræmd stúdentspróf.

5. Þróunaráætlun deildarinnar

Málið var mikið rætt, um stefnumótun og þróun deildarinnar. V&i-skor er að vinna að stefnumótun skorarinnar og markmiðsáætlun. Hinar skorirnar komi með sínar hugmyndir og hafa vinnu v&i-skorar til hliðsjónar.

6. Önnur mál

6.1 Hugbúnaðarverkefni 1 Ð 087151 Ð Breytt námsmat

Nú er námsmatið 50% verkefni og 50% skriflegt próf í námskeiðinu. Allir nemendur í námskeiðinu hafa óskað eftir því að verkefnið verði 2/3 hluti einkunnar og munnlegt próf og kynning 1/3 hluti einkunnar. Umsjónarkennari Helgi Þorbergsson, leggur til þessa breytingu á námsmati að þessu sinni, í samræmi við óskir nemenda. Deildarráð samþykkti samhljóða breytingu á námsmati námskeiðsins að þessu sinni, nú á haustmisseri.

6.2 Skipan fulltrúa deildar í meistaraprófsnefndir

Samþykkt einróma að skipa Helga Waage fulltrúa deildar í nefnd um meistaraverkefni Héðins Steingrímssonar (aðrir í nefndinni eru Sven Þ. Sigurðsson og Tómas Philip Rúnarsson).

Samþykkt einróma að skipa Birgi Hrafnkelsson fulltrúa deildar í nefnd um meistaraverkefni Einars Sveins Jónssonar (aðrir í nefndinni eru Guðmundur R. Jónsson, Ólafur Pétur Pálsson og Valur Einarsson).

Fleira ekki tekið fyrir á fundi.
Fundi slitið kl. 13:40.
Jón Guðmar Jónsson
fundarritari