Miðvikudaginn 2. október 2002 kl. 12.25 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Mætt voru: Sigurður Byrnjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson, Páll Valdimarsson, Jóhannes R. Sveinsson, Helgi Þorbergsson, Árni Freyr Stefánsson, Brynja Sigurðardóttir, Halldór Ægir Halldórsson og Anna Soffía Hauksdóttir. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt með lítils háttar breytingum.
1.Ð11. nóvember nk. verða haldnir svokallaðir vísindadagar. Viðraðar voru hugmyndir um þátttöku verkfræðideildar, svo sem skipulagning og framkvæmd á hönnunarkeppni grunnskólanemenda með Legó-kubbum.
24. október nk. verður haldin ráðstefna verkfræðideildar og Verkfræðingafélags Íslands þar sem fjallað verður um rannsóknarverkefni og tengsl þeirra við atvinnulífið.
Háskólinn hefur fallið frá því að setja á stofn nám í arkítektúr í samstarfi við Listaháskólann þar eð ekki er fjárhagslegur grundvöllur fyrir náminu miðað við forsendur menntamálaráðuneytisins.
Dreift var upphaflegri kennsluáætlun deildarinnar árið 2002, bráðabirgðauppgjör kennslu 2002 og fjárhagsáætlun 2002. Samanburður á áætlaðri kennslu ársins og raunverulegri kennslu leiðir í ljós að vinnustundir eru um 5.000 fleiri en áætlað var. Deildarforseti óskaði eftir skýringum skora á frávikinu á næsta deildarráðsfundi.
Samþykkt var einróma eftirfarandi skipan fastanefnda deildarinnar skólaárið 2002-2003:
Undir þessum lið urðu miklar umræður um framgang kennara, hvernig honum er háttað í deildinni. Dreift var reglum um framgang og skýringum við þær. Borin var upp tillaga um að stofnuð yrði framgangsnefnd verkfræðideildar sem skipuð yrði þeim þremur prófessorum sem hefðu flest rannsóknarstig. Tillagan var borin undir atkvæði og felld með 4 atkvæðum gegn 1.
Deildin gerir ekki athugasemdir við drög að samræmdu stúdentsprófi. Skorir munu skila inn drögum að inntökuskilyrðum deildar á næsta deildarráðsfundi.
Stúdent í r&t hefur óskað eftir aukaprófi í Stærðfræðigreiningu IVB nú í október, til vara í desember. Til þessarar beiðni liggja sérstakar ástæður. Miklar umræður urðu um málið. Almennt virtust menn á því máli að heimila aukapróf í þessu tilviki. Deildarforseti tók að sér að leiða málið til lykta og gerir það strax á morgun.
Háskólinn hefur það á stefnu sinni að stuðla að þverfaglegum námsleiðum, einkum á meistarastigi. Nefnt var að verkfræðideild gæti komið að námi í heilbrigðistækni, matvælaverkfræði, jarðverkfræði og líffverkfræði, að því tilskildu að Háskólinn ívilni slíku námi.