209. deildarráðsfundur

209. deildarráðsfundur verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginn 11. september 2002, í stofu 248 í VR-II. Fundurinn hófst kl. 15:00.
Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Birgir Jónsson, Páll Valdimarsson, Jóhannes R. Sveinsson og Helgi Þorbergsson. Fulltrúar nemenda: Árni Freyr Stefánsson, umhverfis- og byggingarverkfræðiskor, Brynja Sigurðardóttir véla- og iðnaðarverkfræðiskor og Guðmundur J. Kristjánsson, rafmagns- og tölvuverkfræðiskor. Sven Þ. Sigurðsson boðaði forföll. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.

Mál á dagskrá:

1. Fundargerð síðasta fundar

Jóhannes R. Sveinsson, formaður r&t-skorar óskaði eftir því að athugað yrði hvort fordæmi væru fyrir því að deildarráðsfundur hefði verið haldinn án þess að fulltrúi einhverrar skorar hefði verið mættur.

2. Tilkynningar

2.1 Nefndir deildar

Deildarforseti óskaði eftir tilnefningu skora í nefndir. Nefndir deildar eru Kennslumálanefnd, Tölvunefnd, Vísindanefnd, Kynningarnefnd og Alþjóðanefnd. Fulltrúar r&t-skorar og t-skorar verða þeir sömu og á síðasta skólaári.

2.2 Vefur deildar

Deildarforseti heldur áfram því starfi sem hann hefur sinnt að undanförnu varðandi vef deildar með tilkynningar o.fl. Skorir athugi hvort þær vilji að birt verði á vefnum tilkynningar frá skorum. Upplýsingar um kennara komi fram á vefnum.

2.3 Prófgráður

Tilmæli til skora um að þær fari yfir auglýsingu ráðuneytis um heimilaðar prófgráður deildarinnar borið saman við það sem einstakar skorir heimila nú og hafa samþykkt.

2.4 Kennslukönnun

Dreift heildarniðurstöðum úr kennslukönnun fyrir Háskólann í heild og í verkfræðideild.

3. Fjárhagsstaðan

Dreift yfirliti yfir fjárhagsstöðu deildar m.v. 15. sept. 2002. Launakostnaður í deild er orðinn hærri en gert er ráð fyrir m.v. Háskólann í heild, mismikið eftir skorum. Gæta þarf aðhalds í rekstri.
Deildarforseti óskaði eftir því að skorir færu af stað með vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2003.

4.MS-nemendur

Dreift yfirlitum yfir:

  1. Umsóknir nemenda sem ekki hafa verið samþykktar í deildarráði en vísindanefnd hefur samþykkt.
  2. Umsóknir um meistaranám við verkfræðideild H-2002 (58).
  3. Meistaranemar í heild. Lagt er til að nemendur sem ekki hafa verið samþykktir í deildarráði, en vísindanefnd hefur samþykkt, verði samþykktir í meistaranámið.

Tillagan var samþykkt.

5. Reglur verkfræðideildar

Deildarforseti sagði að fara þyrfti yfir reglur deildar og samræma þær reglum Háskólans. Jafnframt að fara yfir það hvort deild vildi/þyrfti að breyta reglum sínum.

6. Reglur um MS-nám - Drög

Fara þarf yfir reglur/ferlið við meistaranámið. Vísindanefnd er að vinna í málinu. Skorir fari yfir ferlið og komi athugasemdum/tillögum til deildarforseta.

7. Beiðni tölvunarfræðiskorar um heimild frá deild til að fella diplómanám niður

Tölvunarfræðiskor samþykkti einróma á fundi sínum þann 4. september 2002 að leggja til að diplómanámið verði fellt niður frá og með þessu skólaári, en þeir nemendur sem nú eru í náminu ljúki því. Nemendum hefur farið stöðugt fækkandi. Samþykkt einróma að fella niður diplómanámið frá og með þessu skólaári.

8. Önnur mál

8.1 Nemendamál

Erindi frá nemanda sem óskar eftir því að innritast í hugbúnaðarverkfræði en hann stefnir að því að ljúka ib-stúdentsprófi nú í nóvember. Samþykkt að hann fái að fara í próf í deildinni þegar hann hefur lokið ib-prófi.

8.2 Kaup á hugbúnaði - Labview

Erindi frá Rögnvaldi Ólafssyni dósent í eðlisfræði, til deildarforseta verkfræði- og raunvísindadeilda um að deildirnar taki þátt í kostnaði við kaup á Labview hugbúnaði með öllum tilheyrandi leyfum. Stofnkostnaður er 613 þús. kr. og árlega 154 þús. sem myndi skiptast á alla notendur. Skorir kanni þörfina fyrir hugbúnaðinn áður en ákvörðun verður tekin.

8.3 Nám í efnaverkfræði

Vandamál eru komin upp varðandi námslán vegna skólagjalda til þeirra nemenda í efnaverkfræði sem taka hluta af náminu í Montana.

8.4 Framgangsmál

Formaður r&t-skorar, Jóhannes R. Sveinsson, varpaði fram hugmyndum um það hvernig deild meðhöndlaði framgangsumsóknir.

Fundi slitið kl. 16:30.
Jón Guðmar Jónsson
fundarritari