Miðvikudaginn 21. ágúst 2002 kl. 12:20, var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar. Mætt voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Helgi Þorbergsson, Birgir Jónsson, Páll Valdimarsson, Árni Freyr Stefánsson, Brynja Sigurðardóttir. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Eru í úrvinnslu.
Var vísað til umræðna í skor. Deildarforseti og varadeildarforseti taka saman tillögu.
Fundurinn verður mánudaginn 26. ágúst. Rætt um fyrirkomulag fundarins.
Fundurinn verður haldinn föstudaginn 23. ágúst kl. 8:30.
Námsráðgjöf verður með námstækninámskeið fyrir nýnema 3. og 4. viku misserisins.
Dreift var samantekt Svens Þ. Sigurðssonar og fór hann yfir samantektina. Miðað við stöðuna í ágúst er deildin komin nokkuð fram úr áætlun. Fyrningar eða inneign kennara verði þær greiddar út, breytir stöðunni verulega.
Um 40-50 meistaranemar byrja við deildina á þessu misseri. 4. árs stofa véla- og iðnaðarverkfræðiskorar verður gerð að vinnustofu meistaranema úr öllum skorum, 4. árs stofa rafmagns- og tölvuverkfræðiskorar verður að almennri kennslustofu.
Á deildarráðsfundi á næstunni á að taka fyrir stefnumörkun og aðgerðaáætlun í tengslum við hana. Í sambandi við kynningu á verkfræðideild stakk deildarforseti upp á því, að farið yrði í kynningarferðir í framhaldsskólana, í október frekar en í apríl. Þá var í fyrra efnt til vísindaferðar til véla- og iðnaðarverkfræðiskorar og rafmagns- og tölvuverkfræðiskorar. Góð þátttaka var í þessum ferðum, margir fulltrúar fyrirtækja komu og skoðuðu aðstöðuna. Hugmynd er að bjóða námsráðgjöfum framhaldsskólanna eða raungreinakennurum hingað.
Halldór Úlfar Halldórsson sækir um að fá að hefja nám í umhverfis- og byggingarverkfræðiskor. Samþykkt einróma.