207. deildarráðsfundur

< Fyrri fundur | Næsti fundur>

Miðvikudaginnn 15. maí 2002 kl. 10.05 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í stofu 258 í VR-II. Mætt voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Jóhannes R. Sveinsson, Jóhann P. Malmquist, Birgir Jónsson, Páll Valdimarsson, Brynja Sigurðardóttir, Halldór Ægir Halldórsson, Guðmundur G. Kristjánsson og Árni Freyr Stefánsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.

Þetta gerðist:

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt án athugasemda.

2. Til kynningar

2.1 Fundur með sameiginlegri stjórnsýslu

Föstudaginn 17. maí verður fundur skorarformanna, deildarforseta og skrifstofustjóra með fulltrúum sameiginlegrar stjórnsýslu Háskólans.

2.2 Erindi kennslusviðs vegna lokaverkefna

Deildarforseti kynnti bréf kennslustjóra þar sem deildum er gert að semja reglur um lokaverkefni. Reglurnar verða birtar í kennsluskrá. Deildarforseta var falið að koma með tillögur á næsta fundi.

2.3 Háskólafundur 23. maí

Birgir Jónsson, fulltrúi deildarinnar á háskólafundinum, verður erlendis 23. maí. Jóhann P. Malmquist, varamaður, mætir á fundinn í staðinn.

2.4 Reglur um sérstök úrræði fyrir fatlaða

Dreift hafði verið til skorarformanna reglum háskólaráðs um sérstök úrræði fyrir fatlaða í námi. Deildarráð styður reglurnar heils hugar.

2.5 Viðbótarnám til stúdentsprófs fyrir nemendur starfsnámsbrauta

Borist hefur bréf frá Gísla Fannberg, verkefnisstjóra á kennslusviði, með beiðni um að verkfræðideild skoði stúdentspróf af starfsnámsbrautum Iðnskólans í Reykjavík, Verkmenntaskólans á Akureyri og Fjölbrautaskólans í Ármúla. Deildin er beðin að meta hvort stúdentspróf af þessum brautum uppfylli inntökuskilyrði og tilgreini, ef eitthvað vantar upp á, hverju þurfi að bæta við.við. Málinu var vísað til umfjöllunar í skorum og verður tekið fyrir að nýju á næsta deildarráðsfundi.

Í framhaldi af erindinu spunnust umræður um það hvernig stúdentum úr mismunandi framhaldsskólum hefði farnast í verkfræðináminu. Samþykkt var að fela Jóhanni P. Malmquist að taka saman tölfræði um þetta efni eftir gögnum í nemendaskrárkerfinu.

2.6 Tækniháskóli Íslands

Nýtt frumvarp um Tækniháskóla Íslands var nýlega samþykkt á Alþingi.

2.7 Nám í arkitektúr

Hugmyndir um að Háskóli Íslands og Listaháskóli Íslands veiti arkitektúrgráðuna sameiginlega þykja ekki lengur álitlegar. Ef til vill innritast stúdentar í arkitektúr annaðhvort í Háskóla Íslands eða Listaháskólann en skólarnir nýta námskeið hvor hjá öðrum. Reiknað er með að námið kosti í upphafi 15 miljónir á ári og tvísýnt hvort það stendur undir sér.

2.8 Húsnæðismál

Meistaranemar í u&b eru á hrakhólum. Ræddar voru ýmsar leiðir til að bæta úr húsnæðisskorti, þar á meðal þörf fyrir stærri kennslustofur, svo sem með flutningi á skrifstofum og annarri starfsemi milli VR-II, VR-III og Tæknigarðs.

3. Fjárhagsstaða verkfræðideildar í maí 2002

Sven Þ. Sigurðsson dreifði samantekt og fór yfir stöðuna. Deildin stefnir í að fara fram úr fjárveitingu. Fyrningar, eða inneign fastra kennara sem orðið hefur til fyrir 1. apríl hjá dósentum og lektorum eða 1. ágúst hjá prófessorum, eru nú um 11.000 tímar eða nálægt 30 milj. króna. Deildarforseti lét þá skoðun í ljós að kennarar ættu að fá fyrningarnar sem greiðslu inn á rannsóknarreikninga sína eða greiddar út smátt og smátt eftir því sem þakið leyfði. Fleiri leiðir eru líka til.

4. Önnur mál

4.1 Prófdómarar í meistaranámi

Samþykkt var samhljóða að skipa Pétur K. Maack prófdómara með meistaraverkefni Friðfinns Skaftasonar. Í umsjónarnefnd sitja Oddur Benediktsson og Páll Jensson.

Samþykkt var samhljóða að skipa Árna Ragnarsson prófdómara í meistaranámi Björns Marteinssonar. Í umsjónarnefnd sitja Páll Valdimarsson og Valdimar K. Jónsson.

4.2 Uppsetning einkunnablaðs í meistaraskírteinum

Einkunnablað í meistaraskírteini verkfræðideildar hefur hingað til verið útbúið sérstaklega á skrifstofu deildarinnar. Nemendaskrá hefur prentað einkunnablöð í meistaraskírteini annarra deilda. Lögð var fram tillaga um að verkfræðideild hefði sama hátt á þessu og aðrar deildir en með lítillega breyttri uppsetningu þar eð verkfræðideild reiknar ekki út aðaleinkunn fyrir meistarapróf. Tillagan var samþykkt samhljóða. Í framhaldi af þessu var rætt að á einkunnablöðum, sem stúdent fær í hendur við brautskráningu, ætti að sýna allan skólaferil stúdents, án þess að fella niður föll, fjarveru eða endurtekningar prófa.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 11.40.