205. deildarráðsfundur verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginn 10. apríl 2002, í stofu 248 í VR-II.Ê Fundurinn hófst kl. 12:20.
Mættir: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson, Magnús Þór Jónsson, Jóhannes R. Sveinsson, Helgi Þorbergsson.Ê Fulltrúar nemenda; Þorgeir Margeirsson, María Guðmundsdóttir og Arnar Arnbjörnsson.Ê Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.
Samþykkt með breytingum.
Deildarforseti kynnti og gerði grein fyrir stöðu málsins.
Helgi Þorbergsson skýrði frá því að húsnæði Endurmenntunar og hluti af Tæknigarði (eða öllum Tæknigarði) og Háskólabíó, yrði tekið undir fundinn frá 9.-10. maí.Ê Bílastæði þessara húsa verða einnig teppt frá þeim tíma og fram yfir fundinn.
Fjárhagsáætlunin var lögð fram og rædd.Ê Skorarformenn voru hvattir til þess, að fara ofan í áætlanir sínar, þannig að hægt verði að ganga frá endanlegri áætlun.
Miklar umræður urðu um húsnæðismál deildarinnar eftir að deildarforseti hafði gert grein fyrir þörfum deildar og möguleikum til að bæta úr þörfinni.Ê Varaformaður véla- og iðnaðarverkfræðiskorar óskaði eftir því, að bókað yrði að mikil húsnæðisekla væri hjá þremur kennurum skorarinnar (tveir dósentar og einn prófessor) sem væru í húsnæðishraki/bráðabirgðahúsnæði og leyst yrði húsnæðisþörf þeirra til frambúðar.
Formaður tölvunarfræðiskorar óskaði eftir að bókað yrði að hann teldi æskilegt að kennarar tölvunarfræðiskorar yrðu allir á gangi þeim í Tæknigarði þar sem flestir kennarar eru nú, í stað þess að veita nýjum kennara aðstöðu í VR-III.Ê Jafnframt þyrfti að fá endanlegan úrskurð um að húsnæðið í Tæknigarði heyri undir verkfræðideild.
Deildarforseta falið að skrifa bréf vegna málsins með athugasemdum við frumvarpið.
Formaður tölvunarfræðiskorar skýrði frá því að erindi hefði komið frá öllum nemendum í námskeiðinu ÒLífupplýsingafræði" um að próftíma yrði breytt miðað við upphaflega próftöflu og að það verði fært til 22. apríl.
Formaður umhverfis- og byggingarverkfræðiskorar skýrði frá erindi eins nemanda sem óskar eftir því að fara í fjórða sinn í próf í einu námskeiði.Ê Samþykkt samhljóða eftir umræður.
Forsvarsmenn nemendafélaga verkfræðideildar skólaárið 2001/2002 láta af störfum næsta föstudag og þakka fyrir samstarfið í vetur.Ê Deildarforseti þakkar fyrir samvinnuna f.h. deildarráðs.