Miðvikudaginn 27. mars 2002 kl. 12.30 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Mættir voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson, Helgi Þorbergsson, Páll Valdimarsson, Guðmundur G. Haraldsson, Jóhannes R. Sveinsson og Þorlákur Gunnarsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt án athugasemda.
Deildarforseti og Bjarni Bessason hafa rætt við fulltrúa Listaháskóla Íslands um nám í arkitektúr. Tillögur eru um að námið verði sameiginlegt og báðir skólar veiti gráðuna.
Umsóknarfresturinn rann út 15. mars sl. 9 umsóknir bárust í u&b, 14 í v&i, 2 í r&t og 2 í t. Upplýst var að fleiri umsóknir væru á leiðinni.
Tilkynnt var að út væri kominn bæklingur verkfræðideildar sem sendur er öllum nýstúdentum af náttúru- og eðlisfræðisviði.
Málið var nokkuð rætt og komu fram mismunandi skoðanir.
Frumvarp til laga um stuðning við tækniþróun verður dreift til skorarformanna og gengið frá áliti eftir páska.
Dreift hafði verið tillögum um skiptinguna 2001 og 2002. Deildarforseti útskðrði tillögurnar og forsendur þeirra. Miklar umræður urðu um málið. Ákveðið var að skoða rækilega í hvað greiðslur til reiknistofnunar rynnu. Ef hægt væri að koma við sparnaði á þeim lið rynni sá sparnaður til skora. Að umræðum loknum bar deildarforseti upp tillögu sína um skiptingu fjárveitinga 2001 og var tillagan samþykkt með 5 atkvæðum gegn 1, 1 sat hjá. Samkvæmt tillögunni skiptist fjárveitng deildarinnar árið 2001 þannig:
Almenn útgjöld deildar 26,5 MISK, umhverfis- og byggingarverkfræði 52,2 MISK, véla- og iðnaðarverkfræði 60,0 MISK, rafmagns- og tölvuverkfræði 55,4 MISK, tölvunarfræði 57,9 MISK og verkfræðistofnun 8,5 MISK.
Formaður rafmagns- og tölvuverkfræðiskorar óskaði eftir að bókað yrði að hann teldi óeðlilegt að véla- og iðnaðarverkfræðiskor, fjölmennasta skorin, greiddi eingöngu 500 þ. kr. til verkfræðistofnunar þegar skorin fengi langtum meira til baka frá stofnuninni.
Þá bar deildarforseti upp tillöguna um skiptingu fjárveitinga 2002. Eftir nokkrar umræður var tillaga deildarforseta samþykkt með 5 atkvæðum gegn 1, 1 sat hjá. Samkvæmt tillögunni skiptist fjárveitng deildarinnar þannig:
Almenn útgjöld deildar 28.0 MISK, umhverfis- og byggingarverkfræði 52,2 MISK, véla- og iðnaðarverkfræði 61,9 MISK, rafmagns- og tölvuverkfræði 56,3 MISK, tölvunarfræði 59,7 MISK og verkfræðistofnun 10,2 MISK.
Formaður rafmagns- og tölvuverkfræðiskorar óskaði eftir að bókað yrði að hann teldi óeðlilegt að véla- og iðnaðarverkfræðiskor, fjölmennasta skorin, greiddi eingöngu 500 þ. kr. til verkfræðistofnunar þegar skorin fengi langtum meira til baka frá stofnuninni.
Deildarforseti óskaði að lokum eftir því að skorarformenn færu yfir áætlun haustmisseris 2002 ásamt deildar- og varadeildarforseta strax eftir páska.
Samþykkt var samhljóða tillaga um að heimila flutning á prófi í Stærðfræðigreiningu IID frá 4. til 14. maí.
Samþykkt var samhljóða að skipa eftirfarandi prófdómara
Fleira gerðist ekki
Fundi slitið klukkan 14.30.