Miðvikudaginn 13. mars kl 12:20 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Mætt voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson, Páll Valdimarsson, Jóhannes R. Sveinsson, Gunnar Pálsson, Ingvar Gunnarsson og María Guðmundsdóttir. Fundarritari var Guðrún Helga Agnarsdóttir.
Fundargerð síðasta fundar var samþykkt án athugasemda.
Umsóknir í tækjakaupasjóð eiga að berast deildarforseta fyrir 15. mars.
Deildarforseti kynnti drög að viðbótarsamningi milli Háskóla Íslands og Landspítala háskólasjúkrahúss ásamt hugmyndum um akademískar nafnbætur.
Deildarforseti kynnti nokkur atriði varðandi fyrirhugað samstarf Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands.
Deildarforseti benti á misræmi milli lista kennslusviðs yfir prófgráður, sem verkfræðideild veitir, og upptalningar menntamálaráðuneytis á prófgráðum deildarinnar.
Deildarforseti spurði skorarformenn um afgreiðslu skora á "Álitsgerð nefndar um nám í hugbúnaðarverkfræði.ã Afgreiðslu var frestað uns skorir væru búnar að afgreiða málið.
Kennsluskráin var samþykkt með fyrirvara um nám í hugbúnaðarverkfræði.
Deildarforseti kynnti tillögur sínar að samræmdum reglum um greiðslu vegna kennslu. Tillagan var samþykkt með nokkrum breytingum. Reglurnar taka gildi á haustmisseri 2002.
Málinu var frestað vegna þess að gögn höfðu ekki borist.
Samþykkt einróma að ráða Tómas P. Rúnarsson sem aðjúnkt við tölvunarfræðiskor.
Lögð var fram umsókn Magnúsar Þórs Jónssonar um rannsóknarmisseri á haustmisseri 2002. Deildarráð samþykkti umsóknina samhljóða.
Deildarforseti kynnti mismunandi aðferðafræði við skiptingu fjárveitingu innan deildar. Umræður urðu um málið.