202. fundur deildarráðs verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginn 13. febrúar 2002, kl. 12:20 í stofu 248 í VR-II.
Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson (SB), Sven Þ. Sigurðsson (SÞS), Birgir Jónsson (BJ), Páll Valdimarsson (PV), Jóhannes R. Sveinsson (JRS), Jóhann P. Malmquist (JPM), fulltrúar nemenda, þau Þorgeir Óskar Margeirsson (ÞÓM) u&b, Arnar Arinbjarnarson, v&I, Gunnar Karl Pálsson, r&t og María Guðmundsdóttir, töl og Guðmundur G. Haraldsson (GGH), fulltrúi deildar í háskólaráði. Ritari var Jón Guðmar Jónsson (JGJ).
Samþykkt með breytingum.
H. Í. og KTH hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um vetnisrannsóknir. Lagt fram til kynningar. Yfirlýsingin er undirritðuð af rektor H. Í. Páli Skúlasyni og Anders Flodström forseta KTH.
Deildarforseti óskaði eftir upplýsingum og efni frá skorarformönnum.
Auglýsingastofunni Yddu hefur verið falið að uppfæra kynningarbækling verkfræðideildar sem sendur hefur verið til framhaldsskólanema (stúdentsefnanna) undanfarin ár. Kannað hefur verið hjá nemendum verkfræðideildar hvort þeir hefðu kynnt sér bæklinginn þegar þeir fengu hann á sínum tíma. Bæklingurinn hafði fengið mjög góðar viðtökur.
Deildin mun taka upp kynnis- boðsferðir til deildarinnar og verður starfsmönnum hinna ýmsu fyrirtækja boðið. R&t skor verður með fyrstu kynninguna þann 26. febrúar næstkomandi.
Sven Þ.Sigurðsson gerði grein fyrir áliti nefndar; á vegum deildar; ÒÁlitsgerð nefndar um nám í hugbúnaðarverkfræði í verkfræðideild-8.feb. 2002. Í nefndinni voru Sven Þ. Sigurðsson, Sigfús Björnsson, Páll Jensson og Jónas Elíasson. Niðurstaða nefndarinnar var sú að námið héti BS nám í hugbúnaðarverkfræði og að 60e MS-nám í hugbúnaðarverkfræði hefjist haustið 2004. Í álitsgerðinni koma fram tillögur um skipan náms í hugbúnaðarverkfræði, einstök námskeið ofl.
Málinu/álitsgerðinni var vísað til skora með ósk um skjóta afgreiðslu málsins.
Lagt fram plaggið; ÒStaða verkfræðideildar 2001-2002/25.01.2002/Sven." Áætluð staða í lok ársins 2001 er jákvæð að fjárhæð 13,3 Mkr. Þá er ekki tekið með í reikninginn ógreiddar yfirvinnustundir í lok ársins 2001.
Áætluð útgjöld ársins 2002, skv. drögum að fjárhagsáætlun, eru 293 Mkr og tekjur 12 Mkr eða 281 Mkr nettóútgjöld en fjárveiting ársins 2002 er 268 Mkr.
Í samhengi við 4. dagskrárlið. Samþykkt samhljóða að fresta afgreiðslu á skiptingu fjárveitingar áranna 2001 og 2002, sbr. tillögu SÞS, þangað til deildarforseti og varadeildarforseti hefðu rætt við einstaka skorarformenn og að lögð yrði fram tillaga í framhaldi af þeim viðræðum.
Deildarforseta falið að finna lausn á staðsetningu ljósritunarvélar í VR-II í samráði við formann hússtjórnar og nemendur.
Egill B. Hreinsson hafði sent deildarráði erindi með fyrirspurn um það hvort greiðslur til fastra kennara skertust fyrir kennslu í námskeiðum ef færri en sjö nemendur mættu í próf. Deildarforseta falið að svara erindi Egils.
Páll Valdimarsson formaður v&I skorar lagði fram línurit yfir námskeið og fjölda þreyttra eininga í einstökum námskeiðum í hverri skor.
Jóhann P. Malmquist varaformaður tölvunarfræðiskorar vakti athygli á því að gæta þyrfti þess tölvur/tæki liggi ekki undir skemmdum í krítarryki í VR-II.
Skorir þurfa að afgreiða, hver skor fyrir sig, hvort þær leggi til að starfsþjálfun verði áfram skilyrði sem nemendur þurfa að uppfylla til að ljúka BS námi við deildina/skorina.
Erindi hafði komið frá Verkfræðingafélaginu um það hvort deildin væri tilbúin til að kenna í fjarnámi til MS prófs, það er tæknifólki í félaginu og öðrum félagsmönnum.
Stærðfræðiskor er tilbúin, ef fjárhagslegar og faglegar (kennarar til að kenna) forsendur eru fyrir hendi, til að endurtaka kennslu í Stærðfræðigreiningu IIB á hausti 2002 (vornámskeið) og Línulega algebru og rúmfræði á vori 2003 (haustnámskeið) með sama hætti og Stærðfræðigreining IB hefur verið kennd með endurtekningu á vori (haustnámskeið) undanfarin tvö ár.
Deildarforseti skýrði frá því að hann hefði ásamt forseta raunvísindadeildar gengið með rektor, tveimur af framkvæmdastjórum Háskólans, þeim Þórði Kristinssyni og Ingjaldi Hannibalssyni um húsnæði v&r til að gera þeim grein við hvaða aðstæður deildirnar búa.
Deildarforseti gerði grein fyrir stöðu mála varðandi arkitektanámið.
Fleira ekki tekið fyrir á fundi.
Fundi slitið kl 14:00