201. deildarráðsfundur

< Fyrri fundur | Næsti fundur>

Miðvikudaginn 16. janúar 2002 kl. 12.30 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Mættir voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson, Jóhann P. Malmquist, Páll Valdimarsson, Guðmundur G. Haraldsson, Jóhannes R. Sveinsson, Þorgeir Margeirsson, Arnar Arinbjarnarson, María Guðmundsdóttir og Gunnar Karl Pálsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt með einni orðalagsbreytingu.

2. Tilkynningar

2.1 Viðbótarfjárveiting verkfræðideildar

Deildin fær tæpar 44 miljónir í viðbótarfjárveitingu fyrir árið 2001 og tölvunarfræðiskor hefur fengið einn a-kassa. Deildarforseti lagði fram ýmsar tölur varðandi fjármál deildarinnar og útskýrði þær.

2.2 Námstækni

Námsráðgjöf verður með námskeið um námstækni fyrir stúdenta í verkfræði- og raunvísindadeildum í lok janúar.

2.3 Lausn frá störfum

Þórður Runólfsson hefur fengið lausn frá störfum sem rannsóknarprófessor frá 1. janúar sl.

2.4 Samningurinn við Björn Birnir

Samningurinn við Björn Birnir hefur verið staðfestur í háskólaráði.

2.5 Árbók VFÍ

Minnt var á að Árbók VFÍ væri ágætur vettvangur fyrir greinaskrif um verkfræðileg efni.

2.6 Rannsóknasamningurinn við ríkið

Undirritaður hefur verið rannsóknasamningur ríkisins við Háskólann. Guðmundur G. Haraldsson sagði frá samningnum og nokkrum niðurstöðum í honum. Töluverðar umræður urðu um þetta efni og verður þeim haldið áfram á næsta fundi.

2.7 Tilnefningar í stjórnir stofnana

Páll Jensson var tilnefndur fulltrúi í Sjávarútvegsstofnun, Júlíus Sólnes fulltrúi í Umhverfisstofnun, Edda Valgerður Benediktsdóttir fulltrúi verkfræði- og raunvísindadeilda í Rannsóknastofu í kvennafræðum, Ebba Þóra Hvannberg fulltrúi í Jafnréttisnefnd Háskólans

2.8 Bæklingur um inntökuskilyrði

Efni bæklingsins var dreift á fundinum. Samþykkt var að leggja í bæklingnum áherslu á að verkfræðinámið væri 5 ár þótt stúdentar gætu hætt eftir þrjú ár og fengið þá B.S.-skírteini sem ekki gæfi rétt til að kallast verkfræðingur.

3. B.S.-nám í hugbúnaðarverkfræði

Sven Þ. Sigurðsson gerði grein fyrir stöðunni.

4. Meistara- og doktorsumsóknir, nefndir og prófdómarar

Eftirfarandi umsóknir um meistaranám við verkfræðideild voru samþykktar samhljóða:
Marija Boskovic í u&b, Íris Jónbjörnsdóttir og Þorvaldur Logi Pétursson í tölvunarfræði.

Samþykkt var umsókn Benedikts Helgasonar um doktorsnám við verkfræðideild enda leggi hann fram námsáætlun fyrir skor og vísindanefnd fyrir 15. febrúar. Samþykkt var skipan Runólfs Maack sem prófdómara við meistarapróf Geirs Þórólfssonar. Samþykkt var skipan Pálma Jónssonar sem prófdómara við meistarapróf Hjörleifs Pálssonar. Samþykkt var skipan Birgis Jónssonar sem prófdómara við meistarapróf Ágústs Þorgeirssonar. Samþykkt var framlenging á námstíma Sigurjóns Haukssonar, meistaranema í u&b, til sumars 2003.

5. Umsagnir

5.1 Stjórnunar- og aðstöðugjald

Í tillögum, sem lagðar voru fram á fundinum, er gert ráð fyrir að 20% stjórnunar- og aðstöðugjald leggist á sértekjur til rannsókna við Háskólann. Guðmundur G. Haraldsson lýsti sjónarmiðum sínum en hann telur þessa prósentu of háa. Margir tóku til máls og voru flestir þeirrar skoðunar að stjórnunar- og aðstöðugjaldið ætti að vera lægra. Að lokum var deildarforseta falið að semja ályktun um málið.

5.2 Hagnýting hugverka

Málið var rætt og deildarforseta falið að semja ályktun.

6. Hluteinkunn, prófseinkunn, verkþjálfun

Skorir eiga að setja reglur um hvað hluteinkunn gildir mikið í lokaeinkunn í hverju námskeiði. Rætt var um kröfurnar í reglugerð verkfræðideildar þess efnis að stúdent þurfi að ná lágmarki bæði í prófseinkunn og lokaeinkunn til að standast. Þá var tekin upp umræða um hvort deildin ætti að leggja niður kröfur um verkþjálfun. Ákveðið var að vísa þessum málum til umræðna í skorum.

Tillaga kom fram um að heimilað yrði að kenna námskeið á meistarastigi á ensku. Því máli var líka vísað til umfjöllunar í skorum.

Tölvunarfræðiskor hefur hug á að fara með nemendur sína í námsferð til Bandaríkjanna. Fyrirkomulagið yrði með sama hætti og í öðrum skorum deildarinnar.

7. Fjárhagsáætlun verkfræðideildar 2002

Áætlunin þarf að liggja fyrir 28. janúar. Undir þessum lið dreifði deildarforseti reglum deildarinnar um útreikning á vinnustundum við kennslu og fór yfir reglurnar.

8. Önnur mál

8.1 Árangur 1. árs stúdenta í desemberprófum

Jóhann P. Malmquist lýsti yfir áhyggjum af lélegum árangri stúdenta á 1. ári í verkfræðideild í desemberprófunum. Fall virðist meira en verið hefur. Ákveðið var að skoða málið.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið klukkan 14.40.