200. deildarráðsfundur

< Fyrri fundur | Næsti fundur>

200. fundur deildarráðs verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginn 12. desember 2001, kl. 12:20 í stofu 248 í VR-II.

Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson (SB), Sven Þ. Sigurðsson (SÞS), Ragnar Sigbjörnsson (RS), Páll Valdimarsson (PV), Jóhannes R. Sveinsson (JRS), Helgi Þorbergsson (HÞ), Þorgeir Óskar Margeirsson (ÞÓM) u&b, fulltrúi nemenda og Guðmundur G. Haraldsson (GGH), fulltrúi deildar í háskólaráði. Ritari var Jón Guðmar Jónsson (JGJ). Trausti Valsson mætti og gerði grein fyrir dagskrárlið 2.

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt án athugasemda.

2. Til kynningar

2.1 MS nám í skipulagsfræðum, Trausti Valson kynnir

Fyrst gerði varaformaður u&b skorar, Ragnar Sigbjörnsson, grein fyrir umræðum í skor og bókun frá skorarfundi en þar er gert ráð fyrir samstarfi við aðrar deildir við að koma náminu af stað. Gert er ráð fyrir því að hægt verði að stunda námið með öðru starfi.

Trausti Valsson, sem unnið hefur að undirbúningi málsins í deild, gerði síðan grein fyrir málinu og lagði fram plöggin: Um þróun hugmyndar um MS-nám í skipulagsfræði við u&b skor." og Um MS-nám í skipulagsfræði við u&b skor.

Aðdragandi málsins er það að vorið 2001 ákvað Skipulagsfræðingafélag Íslands (SÍ) að taka málið upp og skipaði félagið fjögurra manna nefnd til viðræðna við u&b skor. Unnið hefur vearið að undirbúningi málsins í samvinnu við erlenda aðila.

Fram kom að skipulagsfræðingar hafa hingað til komið úr hópi verkfræðinga, arkitekta og landfræðinga.

Umræður urðu um málið. Að mati Trausta er fyrirsjáanleg mikil þörf á skipulagsfræðingum í framtíðinni. Málið var hér á dagskrá deildarráðs í fyrsta sinn til kynningar. Unnið verður að málinu áfram.

3. Tilnefningar

3.1 Dómnefnd um framgang Jóns Tómasar Guðmundssonar í starf dósents.

Samþykkt einróma að Jón Atli Benediktsson verði, skv. tillögu skorar, tilnefndur formaður dómnefndar um framgang Jóns Tómasar Guðmundssonar í starf dósents.

3.2 Dómnefnd um starf í tölvuverkfræði (2 umsækjendur)

Samþykkt einróma að Sigfús Björnsson verði, skv. tillögu skorar, tilnefndur formaður dómnefndar um starf í tölvuverkfræði.

3.3 Fulltrúi deildar í stjórn Sjávarútvegsstofnunar

Deildarforseta falið að tilnefna.

3.4 Fulltrúi deildar í stjórn Umhverfisstofnunar (tillaga: Júlíus Sólnes)

Samþykkt einróma að Júlíus Sólnes verði fulltrúi deildar í stjórn Umhverfisstofnunar.

3.5 Fulltrúi deildar í stjórn Rannsóknarstofu í kvennafræðum (ásamt raunvísindadeild)

Deildarforseta falið að tilnefna varafulltrúa og jafnframt samþykkt að fulltrúi raunvísindadeildar yrði aðalfulltrúi.

3.6 Fulltrúi deildar í verkefnastjórn jafnréttisátaks: Konur til forystu og jafnara námsval kynjanna.

Deildarforseta falið að ganga frá málinu.

4. Fjárhagur (fréttir, staðan, yfirlit, bókasafn)

Lagt fram plagg frá Sven Þ.Sigurðssyni; Staða verkfræðideildar í des 2001.." Ekki liggur fyrir niðurstaða um afkomu ársins, þar sem óljóst er um það hver verður aukafjárveiting ársins.

Samþykkt að greiða reikning frá Landsbókasafni-Háskólabókasafni af fjárveitingu verkfræðideildar.

5. Önnur mál

5.1 Aðjúnktar við u&b skor

Samþykkt einróma að samningar við Baldvin Einarsson, Gunnar Pálsson, Jónas Þór Snæbjörnsson og Þorsteinn Þorsteinsson sem aðjúnktar við u&b skor verði endurnýjaðir.

5.2 Reglur um ráðningar og ráðningaréttindi aðjúnkta í Félagi Háskólakennara

Lagt fram til kynningar: Reglur um ráðningu og ráðningarréttindi aðjúnkta í Félagi háskólakennara." Reglur þessar voru lagðar fram í háskólaráði þann 6/12 2001.

5.3 Setu- atkvæðisréttur aðjúnkta (skv. eldri skilgreiningu)

Rætt var um atkvæðisrétt aðjúnkta á skorar- og deildarfundum.

5.4 Auglýsing um starf lektors eða dósents í umhverfisverkfræði

Varaformaður u&b skorar óskaði eftir því að eftirfarandi bókun um málið á skorarfundi yrði bókuð í deildarráði: Skorarfundur í u&b skor mótmælir harðlega vinnubrögðum deildarforseta varðandi auglýsingu starfs í umhverfisverkfræði við skorina."

Fleira ekki tekið fyrir á fundi.
Fundi slitið kl 14:30
Jón Guðmar Jónsson
(sign)