Miðvikudaginn 14. nóvember 2001 kl. 13.05 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II. Mætt voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson, Helgi Þorbergsson, Magnús Þór Jónsson (í forföllum formanns v&i), Guðmundur G. Haraldsson, Jóhannes R. Sveinsson, Sigurbjörg Ólafsdóttir, Þorgeir Margeirsson, Gunnar Karl Pálsson og Arnar Arinbjarnarson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt án athugasemda.
Deildarforseti upplýsti, í framhaldi af umræðum um málið á síðasta fundi, að ráðstöfun auglýstrar stöðu í arkitektúr væri að öllu leyti í höndum rektors.
Gögnum um þessi mál hafði verið dreift, sjá fylgiskjöl á vefnum. Deildarforseti bað menn að kynna sér málin. Nokkrar umræður urðu um aðstöðugjaldið.
Deildarforseti hefur sótt um styrk til Samtaka iðnaðarins til að vinna áfram að gæðakerfi deildarinnar. Málið er í skoðun.
Borist hefur bréf frá stúdenti vegna skorts á lesrými um leið og borð á bókasafni VR-II standa ónotuð tímunum saman, en frátekin. Ennfremur taldi hann vanta aðstöðu fyrir stúdenta sem vinna að hópverkefnum.
Málið var rætt. Menn voru sammála um að stúdent ætti ekki að geta haft borð frátekið lengur en hálftíma. Fulltrúum stúdenta á fundinum var falið að fylgja málinu eftir.
Nokkrar stofur á 1. hæð í VR-II verða hafðar opnar eftir að kennslu lýkur. Samþykkt var að leyfa stúdentum að setjast þar inn til að lesa eða vinna hópverkefni. Þetta leyfi er háð því að ræsting geti gengið eðlilega fyrir sig og umgengni sé góð.
Minnt var á ráðstefnu á vegum Verkfræðingafélags Íslands og Verkfræðideildar Háskóla Íslands um hugbúnaðarþróun. Ráðstefnan verður haldin á morgun.
Sven Þ. Sigurðsson skýrði gögn sem dreift var um stöðu deildarinnar í nóvember, sjá fylgiskjöl á vefnum. Skorir standa misjafnlega en í heild er staða deildarinnar viðunandi.
Tölvunarfræðiskor leggur til að Ágúst Guðmundsson og Kristján Þór Finnsson verði nýráðnir aðjúnktar til 1. júlí nk. Það var samþykkt samhljóða. Þá var samþykkt samhljóða að framráða Finn Pálsson og Magnús Kristbergsson aðjúnkta við r&t.
Tveir 50% lektorar hafa starfað hjá véla- og iðnaðarverkfræðiskor og rennur ráðning þeirra út í árslok. Skorin leggur til að auglýst verði ótímabundið 50% lektorsstarf og hljóði starfslýsingin þannig:
"Við véla- og iðnaðarverkfræðiskor verkfræðideildar Háskóla Íslands er laust til umsóknar 50% starf lektors í iðnaðarverkfræði. Staðan verður veitt frá 1. janúar næstkomandi. Umsækjendur skulu hafa hagnýta reynslu í verkefnastjórnun og kennslu á því sviði."
Um þetta urðu talsverðar umræður en að lokum var samþykkt samhljóða að heimila skorinni að auglýsa starfið.
Þá var samþykkt samhljóða beiðni v&i um að frumráða aðjúnkt til skorarinnar.
Frestað
Samþykkt að meistaraprófsnefnd Helga Páls Helgasonar sé skipuð þeim Jóni Atla Benediktssyni, leiðbeinanda, og Oddi Benediktssyni. Prófdómari verði Vesselin Bontchev.