198. fundar deildarráðs verkfræðideildar

198. fundur deildarráðs verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginn 31. október 2001, kl. 12:20 í stofu 248 í VR-II.

Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson (SB), Sven Þ. Sigurðsson (SÞS), Birgir Jónsson (BJ), Páll Valdimarsson (PV), Jóhannes R. Sveinsson (JRS), Helgi Þorbergsson (HÞ), fulltrúar nemenda þau Arnar Arinbjarnarson (AA) v&I, Þorgeir Óskar Margeirsson (ÞÓM) u&b, María Guðmundsdóttir (MG) töl og Gunnar Karl Pálsson (GKP) r&t. Ritari var Jón Guðmar Jónsson (JGJ).

Breyting á dagskrá:
Tillaga frá deildarforseta um að 7. dagskrárliður verði "Nám í arkitektúr við Háskóla Íslands" í stað "Annarra mála."
Samþykkt með öllum atkvæðum gegn einu.

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt án athugasemda.

2. Tilkynningar.(Fundur m/senati, Lagnakerfi, Hátíðin okkar, Rannsóknaskýrslur.)

2.1 Senat verkfræðideildar

Fundur með Senati verður þriðjudaginn 6. nóvember kl 16:00. Rætt var um stöðu og hlutverk "Senatsins."

2.2 Hátíðin okkar

Sérstök afmælishátíð starfsmanna Háskólans verður að kvöldi 1. des. Deildarforseti kynnti tölvupóst frá Dagnýju Kristjánsdóttur um málið.

2.3 Rannsóknaskýrslur

Deildarforseti hvatti menn til að skila rannsóknaskýrslum til rannsóknasviðs Háskólans. Einnig skýrslum sem hefði verið skilað til vinnumatsins.

2. 4. Lagnakerfi

Lagnakerfamiðstöð Íslands verður með kynningu 24. nóvember n.k. og þá verður miðstöðin formlega opnuð (LKÍ).

3. Fjárhagur Staðan 30.09.01. Rekstraryfirlit HÍ jan-sept)

Erfitt er að gera sér grein fyrir hvert deildin stefnir fjárhagslega í lok ársins, þar sem ekki eru komnar inn viðbótarfjárveitingar vegna launahækkana vegna kjarasamninga í apríl eða aukinna kennsluumsvifa (aukinna fjöldi þreyttra eininga).

Formaður v&i skorar gerði ítarlega grein fyrir stöðu sinnar skorar. Sérstaklega óinnheimtum tekjuliðum og hverjir stærstu útgjaldaliðirnir undir öðrum rekstrargjöldum væru. Deildarforseti sagði skorir þurfa að sýna aðhald í útgjöldum.

4. Aðjúnktar í tölvunarfræði

Stjórnarfundur í SÍH hefur tilnefnt tvö einstaklinga sem aðjúnkta við tölvunarfræðiskor. Málið var kynnt. Verður lagt fyrir skorarfund og síðan til afgreiðslu í deildarráði.

5. Fundur með nýnemum og námsráðgjöf

Fundur verður haldinn fljótlega með nýnemum verkfræðideildar eins og gert var á síðasta hausti.

Þá hefur deildarforseti verið í sambandi við námsráðgjöf, fulltrúa þar Arnfríði Ólafsdóttur, sem hefur með námsráðgjöf til verkfræðinema að gera. Haldið verður námskeið í námstækni fyrir nýnema í verkfræðideild fljótt eftir áramót.

6. MS-umsókn/MS nefndir

6.1 umsókn Ursulu Zühlke um doktorsnám

Lögð fram umsókn Ursulu Zühlke um doktorsnám við verkfræðideild (r&t skor). Samþykkt einróma.

6.2 MS-nefnd

Guðbergur Jónsson flytur meistarafyrirlestur sinn við tölvunarfræðiskor þann 7. nóvember n.k. Leiðbeinandi er Ebba Þóra Hvannberg og umsjónarkennari er Helgi Þorbergsson. Skorarformaður leggur til að Hermann Ólason rafmagnsverkfræðingur verði prófdómari. Samþykkt einróma.

7. Nám í arkitektúr við Háskóla Íslands

Umræður urðu um það hver beri faglega og fjárhagslega ábyrgð á auglýstu starfi og námi við Háskóla Íslands í arkitektúr. Frestað að skipa fulltrúa í dómnefnd um starfið þar til það liggur fyrir.

8. Önnur mál

8.1 Dómnefndarálit um starf í tölvunarfræði

Fyrirspurn kom frá formanni tölvunarfræðiskorar um það hvort dómnefndarálit um kennarastarf í tölvunarfræði hefði borist til deildar. Álitið hefur ekki borist til deildar.

Fleira ekki tekið fyrir á fundi.
Fundi slitið kl 14:00

Jón Guðmar Jónsson
(sign)