98. deildarfundur Fremri fundargerð Yfirlitssíða Næsta fundargerð

Dagskrá

98. deildarfundur verkfræðideildar var haldinn föstudaginn 14. október 2005 kl. 12:20-14:00 í Tæknigarði-Innri veitingastofu.

Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Anna Soffía Hauksdóttir, Birgir Hrafnkelsson, Bjarni Bessason, Ebba Þóra Hvannberg, Egill B. Hreinsson, Fjóla Jónsdóttir, Halldór Guðjónsson, Hjálmtýr Hafsteinsson, Jóhann P. Malmquist, Jóhannes R. Sveinsson, Jón Atli Benediktsson, Jónas Elíasson, Jón Tómas Guðmundsson, Magnús Már Halldórsson, Páll Valdimarsson, Sigfús Björnsson, Sigurður Erlingsson, Sven Þ. Sigurðsson, Trausti Valsson, Oddur Benediktsson.

Aðjúnktar: Tómas P. Rúnarsson og Þorsteinn Þorsteinsson.

Fulltrúar stúdenta: Ásta Ósk Stefánsdóttir, u&b, Páll Jens Reynisson, v&i, og Valur Fannar Þórsson, r&t.

Kennarar í leyfi voru: Helgi Þorbergsson, Magnús Þór Jónsson og Valdimar K. Jónsson.

Forföll boðuðu: Ólafur Pétur Pálsson og Sigurður Magnús Garðarsson. Fundarritari: Jón Guðmar Jónsson

Mál á dagskrá:

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt samhljóða.

2. Til kynningar

2.1 Nýir starfsmenn

Deildarforseti kynnti í byrjun fundar nýjan starfsmann á skrifstofu deildar, Ernu Sigurðardóttur, verkefnisstjóra, en tveir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir á skrifstofu deildar. Það eru þær Erna Sigurðardóttir, sem hóf störf nú í byrjun október og Edda Friðgeirsdóttir, sem kemur til starfa þann 1. nóvember n.k. Þá mun verða ráðinn nýr fulltrúi í afgreiðslu deildaskrifstofu verkfræði- og raunvísindadeilda. Erna vék af fundi eftir kynninguna.

2.2 Framkvæmdir í VR-II

Deildarforseti fór yfir þær framkvæmdir sem hafa verið í gangi í VR-II frá því í byrjun sumars. Um er að ræða framkvæmdir fyrir deildaskrifstofu og aðstaða í bókasafni fyrir rannsóknanámsnema.

2.3 Vísindagarðar – Stjórn þeirra

Deildarforseti gerði grein fyrir verkefnum stjórnar Vísindagarða.

2.4 Stefnumótun deildar

Deildarforseti rifjaði upp vinnu sem hefur verið í gangi við stefnumótun deildar og fundi í vor og haust um stefnumótun.

3. Rökstuðningur fyrir tillögu um veitingu starfs í tölvunarfræði

Deildarforseti lagði fram eftirfarandi tillögu að rökstuðningu um veitingu starfs í tölvunarfræði:

Fjallað var um ráðstöfun á auglýstu starfi á fundi í verkfræðideild þann 8. júní síðastliðinn. Umræður á deildarfundi snerust að mestu um þær áherslur í rannsóknum og kennslu sem skilgreining starfsins felur í sér. Í því efni var meðal annars vísað til auglýsingar um starfið, en þar segir m.a.:

Tölvunarfræðiskor hefur markað þá stefnu að rannsóknir og kennsla við skorina standist samanburð við það besta sem völ er á. Lektorinn/dósentinn þarf að geta kennt helstu grunnnámskeið sem kennd eru við tölvunarfræðiskor og sinnt meistara- og doktorsnámi við skorina.

Niðurstaða fundarins var sú, að óska eftir því að Kristján Jónasson verði ráðinn dósent við tölvunarfræðiskor til þriggja ára frá og með 1. janúar næstkomandi.

Eins og fram kom í auglýsingunni um starfið var áhersla lögð á kennsluþáttinn í starfinu sem vegur því þungt við val milli hæfra umsækjenda og stóð valið því milli Kristjáns Jónassonar og Önnu Ingólfsdóttur. Það er mat deildarinnar að Kristján sé afburðagóður kennari og eigi auðvelt með að fá nemendur til samstarfs. Þrátt fyrir mikla reynslu Önnu á sviði rannsókna og kennslu er það mat deildarinnar að Kristján sé hæfari til að gegna hinu auglýsta starfi, enda hefur hann farsælan rannsókna- og kennsluferil að baki við Háskóla Íslands. Niðurstaða þessi byggir á þeirri reynslu sem kennarar deildarinnar hafa haft af samstarfi við þessa umsækjendur.

Framangreindur rökstuðningur var mikið ræddur sem og ástæður þess að hann væri borinn upp á þessum fundi en ekki þeim sem fjallaði um starfið. Fram kom breytingartillaga um að síðasta setninginn hljóðaði:

Niðurstaða þessi byggir á þeirri reynslu sem einstakir kennarar innan deildar hafa haft af samstarfi við þessa umsækjendur.

Breytingartillagan var síðan borin upp til atkvæða. Samþykkir voru 4, á móti voru 2. Aðrir fundarmenn sátu hjá.

Tillagan var síðan samþykkt samhljóða í heild sinni með áorðnum breytingum. Eftirtaldir fundarmanna óskuðu að það yrði bókað að þeir hefðu setið hjá. Það voru: Jón Atli Benediktsson, Jóhannes Rúnar Sveinsson, Anna Soffía Hauksdóttir, Birgir Hrafnkelsson, Trausti Valsson og Jón Tómas Guðmundsson.

Egill B. Hreinsson, Magnús Már Halldórsson og Sven Þ. Sigurðsson viku af fundi undir þessum dagskrárlið vegna vanhæfis.

4. Nám í lífverkfræði í samstarfi við læknadeild

Deildarforseti gerði grein fyrir og lagði fram Minnisblað um rannsóknanám (meistaranám) í lífverkfræði (biomedical engineering).

Um er að ræða rannsóknanám í lífverkfræði, í samstarfi við læknadeild. Tillaga um að bjóða upp á umrætt nám í samstarfi við læknadeild var samþykkt einróma.

5. Ósk um að ráða dr. James Beach í tímabundið starf

Lögð fram drög að samningi um starf dósents í lífverkfræði. Málið var rætt. Lögð fram tillaga um að óska eftir því að dr. James Beach verði ráðinn til starfa sem dósent í lífverkfræði við rafmagns- og tölvuverkfræðiskor.

Rafmagns- og tölvuverkfræðiskor hafði greitt atkvæði um málið á netfundi. Samþykkir ráðningunni voru 6 og 1 var auður.

Deildarfundur samþykkti samhljóða að ráða dr. James Beach til starfans.

6. Tilnefning í dómnefnd um framgang Jóns Tómasar Guðmundssonar í starf prófessors

Rafmagns- og tölvuverkfræðiskor hafði samþykkt á netfundi með 6 samhljóða atkvæðum að tilnefna Björn Kristinsson prófessor emeritus sem formann dómnefndar um framgang Jóns Tómasar Guðmundssonar í starf prófessors.

Deildarfundur samþykkti samhljóða að tilnefna Björn Kristinsson prófessor emeritus sem formann dómnefndar.

Jón Tómas Guðmundsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

7. Önnur mál

Engin önnur mál.

Fundi slitið kl. 14:00
Jón Guðmar Jónsson