
Dagskrá
Þetta gerðist:
Samþykkt með athugasemd við lið 2.1 þar sem ritað hafði verið nafn Helga Þorbergssonar í stað Helga Þórs Ingasonar og einnig með þeirri viðbót að aftan við síðustu setningu í lið 3 kæmi "með möguleika á framlengingu."
Opin kerfi hafa veitt fjóra 500 þ. króna styrki til meistaranema. Deildarforseti óskaði eftir að skorarformenn tilnefndu styrkþega.
Háskólaráð hefur samþykkt meistaranám í verkefnastjórnun á vegum verkfræðideildar.
Byrjað er að breyta húsnæði skrifstofa v&r. Ráðið verður nýtt fólk eftir 1. ágúst nk.
Undirritaður hefur verið samningur HÍ og Háskólans í Grenoble um sameiginlega doktorsgráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði. Skólarnir komu sér saman um kröfur í þessu sameiginlega námi. Doktorsnemi frá Grenoble er kominn til landsins skv. samningnum og verður hér í ár. Skólarnir gefa sameiginlega út doktorsskírteinið.
25. ágúst næstkomandi verður framhaldsfundur um stefnumótun deildarinnar.
Einn umsækjenda hefur sent deildarmönnum tölvuskeyti og lýsir yfir undrun á niðurstöðu skorar eftir umfjöllun hennar um dómnefndarálitið og hvetur deildarmenn til að taka ákvörðun eftir faglegum sjónarmiðum og vísar auk þess í jafnréttisáætlun Háskólans. Deildarforseti sagði það ekki samræmast réttum prótókol að fara þannig að og beindi því til fundargesta að líta fram hjá þessu skeyti.
Formaður dómnefndar, Oddur Benediktsson, gerði grein fyrir áliti nefndarinnar. Með Oddi sátu í nefndinni þeir Kent D. Boklan og Snorri Agnarsson.
Umsækjendur um starfið voru fimm. Einn dró umsókn sína til baka, annar var ekki talinn hæfur þar eð menntun hans lá ekki á réttu sviði. Þeir þrír sem eftir stóðu voru Anna Ingólfsdóttir, Bjarni V. Halldórsson og Kristján Jónasson. Dómnefndin komst að þeirri niðurstöðu að Bjarni hefði lektors- en hin tvö dósentshæfi.
Formaður tölvunarfræðiskorar sagði frá umfjöllun skorar um dómnefndarálitið en þar varð niðurstaða atkvæðagreiðslu sú að Anna Ingólfsdóttir fékk 1 atkvæði, Kristján Jónasson 5 en 1 skilaði auðu. Þrír kennarar í skorinni sátu ekki fundinn vegna vanhæfis þar eð einn var umsækjandi, annar bróðir umsækjanda og sá þriðji vegna vináttu við einn umsækjenda.
Mjög miklar umræður urðu um dómnefndarálitið og margar fyrirspurnir bornar upp. Að umræðum loknum var gengið til atkvæða. Þar urðu úrslit þau að Anna fékk 3 atkvæði, Kristján 14 og 3 skiluðu auðu.
Að því loknu samþykkti fundurinn samhljóða að mæla með því að Kristján verði ráðinn dósent við tölvunarfræðiskor til þriggja ára frá og með 1. janúar næstkomandi.