99. deildarfundur verkfræðideildar Yfirlitssíða

Dagskrá

Þetta gerðist:

1. Stefnumótun Háskóla Íslands

Á fundinn komu rektor, Kristín Ingólfsdóttir, og þrír fulltrúar í verkefnisstjórn stefnumótunar, þau Runólfur Smári Steinþórsson, Haukur Ingi Jónasson og Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir. Auk þeirra situr Ómar H. Kristmundsson í verkefnisstjórn.

Rektor flutti inngang og rakti hvers vegna nauðsynlegt væri að ráðast í vinnu við stefnumótun. Runólfur Smári og Haukur Jónasson lýstu því hver verkáætlunin væri og hvernig standa bæri að vinnunni. Nokkrar umræður urðu um málið en að þeim loknum, kl. 13.45, var fundi slitið.

Gögn á fundinum