96. deildarfundur Yfirlitssíða

Dagskrá

96. deildarfundur verkfræðideildar var haldinn miðvikudaginn 6. apríl 2005 kl. 12:30-14:15, í stóra fundarherbergi (innri matsal), í Tæknigarði.

Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Anna Ingólfsdóttir, Anna Soffía Hauksdóttir, Birgir Hrafnkelsson, Bjarni Bessason, Ebba Þóra Hvannberg, Egill B. Hreinsson, Fjóla Jónsdóttir, Guðmundur R. Jónsson, Halldór Guðjónsson, Helgi Þorbergsson, Helgi Þór Ingason, Hjálmtýr Hafsteinsson, Jóhannes R. Sveinsson, Jón Tómas Guðmundsson, Jónas Elíasson, Magnús Þór Jónsson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Valdimarsson, Sigurður Erlingsson, Sigurður Magnús Garðarsson, Trausti Valsson, Valdimar K. Jónsson, Magnúr Már Halldórsson. Fulltrúar nemenda, þau Kenneth Breiðfjörð, u&b, Hulda Hallgrímsdóttir, v&i, Andri Heiðar Kristinsson, r&t og Unnar Steinn Sigtryggsson, töl. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.

1. Fundargerð síðasta fundar

Engar athugasemdir.

2. Til kynningar

2.1 Gæðamál

Deildarforseti, Sigurður Erlingsson, Pálmi Jóhannesson og Helgi Þór Ingason hafa unnið að gæðamálum deildar að undanförnu. Ólafur Jakobsson tæknifræðingur er starfsmaður verkefnisins.

2.2 Stefnumótun

Er í vinnslu. Deildarfundi um þau mál sem stóð til að halda þann 29. mars sl. hefur verið frestað lengra fram á vorið.

2.3 Deildaskrifstofa - Endurskipulagning deildaskrifstofu

Deildarforseti gerði grein fyrir stöðu mála varðandi endurskipulagningu deildaskrifstofu, sbr. tillögu sem legið hefur frammi á kennarastofu.

2.4 Árshátíð

Deildarforseti minnti á árshátíð þann 9. apríl nk.

3. Starf dósents á sviði varma- og straumfræði

Deildarforseti bauð dr. Odd B. Björnsson velkominn en hann var í dómnefndinni, en Páll Valdimarsson, prófessor, var formaður. Einnig var í dómnefndinni dr. Lennart Thornqvist, prófessor við Háskólann í Lundi.

Formaður dómnefndar gerði grein fyrir dómnefndarálitinu en tveir umsækjendur voru um starfið, þeir dr. Halldór Pálsson og dr. Sigurður Tryggvi Thoroddsen.

Niðurstöður dómnefndar voru þær, að Halldór Pálsson væri hæfur í auglýst starf dósents en Sigurður Tryggvi ekki, þar sem hann væri á öðru fræðasviði en auglýst var, þrátt fyrir að vera afburðavísindamaður á sínu fræðasviði.

Þá fékk formaður véla- og iðnaðarverkfræðiskorar orðið og gerði grein fyrir niðurstöðum atkvæðagreiðslu í skor og rökstuðningi:

Mál 18/05 Dómnefndarálit v. starfs í varma- og straumfræði

Við véla- og iðnaðarverkfræðiskor verkfræðideildar er laust til umsóknar starf dósents í vélaverkfræði. Meginstarfssviðið yrði á sviði varma- og straumfræði með áherslu á endurnýtanlega orku, svo sem nýtingu jarðhita, vindorku, lífmassa og vetni.

Páll Valdimarsson, sem var formaður dómnefndar um hið auglýsta starf, fór yfir fyrirliggjandi álit nefndarinnar og rökstuddi. Töluverðar umræður spunnust um stranga túlkun nefndarinnar, en einungis annar umsækjandi telst, í áliti nefndarinnar, uppfylla skilyrði sem sett voru fram um starfssvið í auglýsingunni.

Að lokinni umræðu var eftirfarandi tillaga lögð fram: Véla- og iðnaðarverkfræðiskor leggur til að Halldór Pálsson verði ráðinn í starf dósents á sviði varma- og straumfræði með áherslu á endurnýtanlega orku, svo sem nýtingu jarðhita, vindorku, lífmassa og vetni. Skorin leggur enn fremur til að Halldór verði ráðinn í starfið til þriggja ára með möguleika á framlengingu.

Tillagan var samþykkt samhljóða.

Deildarforseti gaf orðið laust.

Miklar umræður urðu um dómnefndarálitið. Fyrstur tók til máls Magnús Már Halldórsson og flutti hann langa greinargerð um forsendur og viðmið sem verkfræðideild og Háskólinn yfirleitt ættu að hafa við ráðningar og vinnu dómnefnda.

Fram kom hjá deildarfundarmönnum sama viðhorf og hafði komið fram við afgreiðslu skorar, það er hin stranga túlkun dómnefndar um hæfi umsækjenda og vildu fundarmenn að hæfið væri lagalega hafið yfir allan vafa miðað við forsendur auglýsingarinnar og þau skilyrði sem umsækjendur þyrftu að uppfylla hvað fræðasvið varðaði.

Formaður dómnefndar tók skýrt fram að dómnefndarmenn væru ekki að taka að sér ráðningarvaldið heldur kvæðu upp úr með það hvort umsækjendur væru hæfir eða ekki hæfir miðað við forsendur auglýsingarinnar.

Að lokum var samþykkt að fresta afgreiðslu málsins um eina viku.

4. Meistaranám í verkefnastjórnun - Endurmenntun á vegum deildar

Frestað.

5. Önnur mál

5.1 Dómnefndarformaður um kennarastarf í véla- og iðnaðarverkfræði
Deildarforseti lagði til að Páll Jensson yrði formaður dómnefndar um kennarastarf í véla- og iðnaðarverkfræði.

Samþykkt með þorra atkvæða.

5.2 Kynningarmál

Hulda Hallgrímsdóttir gerði grein fyrir kynningu verkfræðinema í deildinni í framhaldsskólum landsins, en nemendur kynntu deildina í um 20 framhaldsskólum um allt land. Einnig var dreift á deildarfundinum greinargerð nemenda um kynninguna. Nýir bæklingar voru gerðir fyrir hverja námslínu. Auglýsingagardína var notuð í framhaldsskólum og glærusýningar og gekk kynningin vel. Þá gerðu þeir Andri Heiðar og Kenneth Breiðfjörð grein fyrir kynningunni og þökkuðu fulltrúar nemenda fyrir samstarfið við deildina en þetta var síðasti deildarfundur þeirra allra. Deildarforseti og deildarmenn þökkuðu samstarfið við nemendur.

Fleira ekki tekið fyrir á fundinum að þessu sinni, en kl. 14:15 var fundinum frestað um eina viku.

Jón Guðmar Jónsson

Framhaldsfundur

96. deildarfundur verkfræðideildar, framhaldsfundur var haldinn miðvikudaginn 13. apríl 2005 kl. 12:30-13:45, (fyrri hluti fundarins var haldinn 6. apríl) í stóra sal (innri matsal), í Tæknigarði.

Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Anna Ingólfsdóttir, Anna Soffía Hauksdóttir, Birgir Hrafnkelsson, Birgir Jónsson, Bjarni Bessason, Ebba Þóra Hvannberg, Egill B. Hreinsson, Fjóla Jónsdóttir, Halldór Guðjónsson, Helgi Þorbergsson, Helgi Þór Ingason, Hjálmtýr Hafsteinsson, Jóhannes R. Sveinsson, Jón Tómas Guðmundsson, Jónas Elíasson, Júlíus Sólnes, Magnús Þór Jónsson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Valdimarsson, Sigurður Magnús Garðarsson, Tómas Philip Rúnarsson, aðjúnkt, Trausti Valsson, Valdimar K. Jónsson, Vilhjálmur Þór Kjartansson og Magnúr Már Halldórsson. Fulltrúar stúdenta, Trausti Hannesson, u&b, Ásta Ósk Stefánsdóttir, u&b, Páll Jens Reynisson, v&i, Sigríður Vala Halldórsdóttir, v&i, Valur Fannar Þórsson, r&t, Steinunn Arnardóttir, r&t og Unnar Steinn Sigtryggsson, töl.

Kennarar í leyfi voru: Oddur Benediktsson, Páll Jensson og Sven Þ. Sigurðsson.

Erlendis voru: Jón Atli Benediktsson, Sigfús Björnsson og Sigurður Erlingsson.

Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.

Mál á dagskrá:

1. Dagskrártillaga

Tillaga var lögð fram um breytingu á dagskrá þannig að dagskrárliður 4 yrði tekinn fyrir á undan dagskrárlið 3.

Samþykkt með þorra atkvæða.

4. Meistaranám í verkefnastjórnun - Endurmenntun á vegum deildar

Deildarforseti kynnti hugmyndir og tillögur um meistaranám í verkefnastjórnun (MPM) við verkfræðideild Háskóla Íslands en Helgi Þór Ingason dósent hefur unnið að hugmyndum og skipulagningu á því námi. Deildarforseti og Helgi Þór gerðu grein fyrir fjárhagslegum forsendum námsins. Gert er ráð fyrir því að námið verði á deildargrunni en ekki skorar.

Helgi Þór Ingason gerði grein fyrir fyrirkomulagi námsins. Gert er ráð fyrir því að nemendur geti stundað námið með öðru starfi. Fram kom að þeir sem ljúka slíku námi geta ekki kallað sig verkfræðinga.

Deildarfundur samþykkti að fara af stað með meistaranám í verkefnastjórnun ef nægjanlegur fjöldi nemenda sækir um slíkt nám og ef fjárhagslegar forsendur gera það kleift. Jafnframt var deildarráði falið að vinna að framgangi námsins og því að gerðar verði nauðsynlegar samþykktir og breytingar á reglum Háskólans og deildar þar að lútandi.

3. Starf dósents á sviði varma- og straumfræði, frh.

Í framhaldi af umræðum á fundinum sem frestað var þann 6. apríl sl. fékk Magnús Þór Jónsson orðið. Í hans greinargerð kom meðal annars fram hvaða rannsóknir Halldór Pálsson hefði stundað frá því að hann lauk doktorsnámi en ekki hefði verið hægt að birta í vísindaritum vegna samninga við fyrirtæki (Elkem) um að birta ekki niðurstöður.

Áframhaldandi umræður urðu og töldu sumir að vísa ætti málinu frá og endurtaka ráðningarferlið eftir að forsendur auglýsingarinnar um starfið hefðu verið endurskoðaðar.

Deildarforseti lagði til að deildarfundarmenn greiddu atkvæði um það hvort leggja ætti til að Halldór Pálsson yrði ráðinn til 3ja ára og síðan áframhaldandi ráðningu ef deild ákvæði það. Var samþykkt að greiða atkvæði um það.

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um það hvort leggja ætti til að Halldór yrði ráðinn urðu þær að:
Já sögðu 11
Nei sögðu 8
Auðir seðlar 4 Afl atkvæða ræður úrslitum.

Samþykkt var því að leggja til við rektor að Halldór Pálsson verði ráðinn dósent til 3ja ára með möguleika á framlengingu.

5. Önnur mál

Deildarforseti bauð nýja fulltrúa nemenda á deildarfundi velkomna til starfa.

Fleira ekki tekið fyrir á fundi.
Fundi slitið kl. 13:45.
Jón Guðmar Jónsson, fundarritari