
Dagskrá
Miðvikudaginn 23. febrúar 2005 kl. 12.30 var haldinn fundur í verkfræðideild í innri matsalnum í Tæknigarði.
Mætt voru:
Sigurður Brynjólfsson, Sigurður Erlingsson, Anna Ingólfsdóttir (kom 14.15), Birgir Hrafnkelsson, Birgir Jónsson, Bjarni Bessason, Ebba Þóra Hvannberg, Egill B. Hreinsson (kom 14.15), Fjóla Jónsdóttir, Guðmundur R. Jónsson, Halldór Guðjónsson (fór 13:35), Helgi Þór Ingason, Hjálmtýr Hafsteinsson (fór 14:15), Jóhann P. Malmquist (fór 12:35), Jóhannes R. Sveinsson (fór 13:20), Jón Atli Benediktsson (fór 13:15), Jón Tómas Guðmundsson, Jónas Elíasson (fór 13:10), Ólafur Pétur Pálsson, Páll Valdimarsson (fjarverandi 13:10-14:30), Sigurður M. Garðarsson, Sven Þ. Sigurðsson, Trausti Valsson, Ágúst Guðmundsson (fór14:29), Tómas P. Rúnarsson, (fór 14:15), Þorsteinn Þorsteinsson, Hildur Einarsdóttir (fór 14:20) og Jóhannes Þ. Ágústsson (fór 14:20).
Gestir fundarins voru þeir Ólafur Jakobsson og Tryggvi Sigurbjarnason vegna kynningar á liðum 4 og 5.
Í rannsóknamisseri voru Magnús Már Halldórsson, Oddur Benediktsson og Páll Jensson.
Forföll boðuðu Anna Soffía Hauksdóttir og Magnús Þór Jónsson.
Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt án athugasemda.
Verkfræðideild á 24 miljónir í rekstrarafgang eftir síðasta ár, en ekki 30 miljónir eins og síðustu tölur bentu til.
Deildarforseti sagði frá námskynningunni á sunnudaginn kemur og kynningarefni sem deildin hefur látið útbúa.
Samþykkt var samhljóða tillaga deildarforseta um þá Egil B. Hreinsson og Jóhann P. Malmquist sem fulltrúa á háskólafundinum, auk deildarforseta sem er sjálfkjörinn, og um þá Sigurð M. Garðarsson og Ólaf Pétur Pálsson til vara.
Sigurður M. Garðarsson vakti máls á mikilli óánægju nemenda með kennsluna í Stærðfræðigreiningu IVB. Deildarforseti hefur fengið formlegt bréf frá nemendum um málið og hefur rætt það við forseta raunvísindadeildar og formann stærðfræðiskorar. Í framhaldi af þeim viðræðum hefur stærðfræðiskor efnt til stuðningskennslu síðdegis á mánudögum. Ýmsir tóku til máls og var rætt hvort deildin gæti aðhafst eitthvað frekar og jafnvel tekið kennsluna í sínar hendur. Deildarforseta var að lokum falið að finna heppilega lausn.
Undirbúningur að gæðakerfi verkfræðideildar er hafinn. Tekin verður saman handbók með verklagsreglum og vinnulýsingum og höfð á vefnum með opinn aðgang. Í verkefnisstjórn eru deildar- og varadeildarforseti, skrifstofustjóri, Helgi Þór Ingason, sem er verkefnisstjóri. Ólafur Jakobsson hefur verið ráðinn til að halda utan um verkefnið. Ólafur sat fundinn undir þessum lið og kynnti hvernig staðið yrði að verkefninu og hver tilgangurinn með því væri. Ýmsum spurningum um verkefnið var svarað en að því loknu vék Ólafur af fundi.
Tryggvi Sigurbjarnason kynnti mjög ítarlega hvernig staðið væri að stefnumótun og hvaða atriði þyrfti að hafa í huga í þeirri vinnu. Eftir framsögu Tryggva urðu líflegar umræður um stefnumótun og gæðastarf. Í lok fundar var samþykkt að 29. mars, þ.e. þriðjudagur eftir páska, yrði starfsdagur allra deildarmanna. Fundinn verður einhver staður, jafnvel utan bæjar, þar sem skipað yrði í vinnuhópa og starfsumhverfi deildar, gildismat, markmið, hlutverk, framtíðarsýn og fleiri þættir skoðaðir ofan í kjöl. Stefna deildar er síðan byggð á þessum þáttum. Því var beint til skora að nýta tímann til að hugleiða þessi mál.