
Dagskrá
Miðvikudaginn 2. febrúar 2005 kl. 12.30 var haldinn fundur í verkfræðideild í innri matsalnum í Tæknigarði.
Mætt voru:
Sigurður Brynjólfsson, Sigurður Erlingsson, Birgir Hrafnkelsson, Birgir Jónsson, Ebba Þóra Hvannberg, Egill B. Hreinsson, Halldór Guðjónsson, Helgi Þór Ingason, Helgi Þorbergsson, Hjálmtýr Hafsteinsson, Jóhann P. Malmquist, Jóhannes R. Sveinsson, Jón Atli Benediktsson, Jón Tómas Guðmundsson, Magnús Þór Jónsson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Valdimarsson, Sven Þ. Sigurðsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Hildur Einarsdóttir, Hulda Hallgrímsdóttir, Kenneth Breiðfjörð, Jóhannes Þór Ágústsson og Andri H. Kristinsson.
Forföll boðuðu Anna Soffía Hauksdóttir, Fjóla Jónsdóttir og Sigurður M. Garðarsson.
Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt án athugasemda.
Deildin á 30 miljónir í afgang eftir síðasta fjárhagsár. Skýringin á þessari góðu stöðu er m.a. að ekki hefur verið ráðið í laus störf en á því verður breyting á árinu.
Lilja Þorleifsdóttir hefur óskað eftir að láta af störfum nú á vormisseri. Deildarforseti kynnti hugmyndir um tvo nýja starfsmenn, verksvið þeirra og hvernig mætti koma þeim fyrir.
Rektor hefur lofað deildinni styrk til kynningarstarfs. Haft hefur verið samband við auglýsingastofu sem aðstoðar við að setja kynningarefnið fram.
Vinna við stefnumótun hófst fyrir nokkrum misserum en er ekki lokið enn. Tryggvi Sigurbjarnarson hefur verið fenginn til að leiða starfið til lykta. Þá er aftur hafin vinna við að útbúa gæðakerfi deildarinnar. Forseti, varadeildarforseti, skrifstofustjóri og Helgi Þór Ingason hafa setið nokkra fundi og undirbúið starfið. Ólafur Jakobsson, sem mikið hefur starfað að gæðamálum og er í meistaranámi við deildina, hefur verið ráðinn til að halda utan um verkið.
Helgi Þór Ingason dreifði samantekt um slíkt meistaranám og kynnti það. Um málið spunnust miklar umræður, m.a. útgjöld og tekjur, markhóp, áhrif kennslu í slíku námi á rannsóknaafköst o.fl. Kennsla gæti hafist í haust. Kannaður var hugur fundarmanna til þess að Helgi legði fram fullmótaðar tillögur um námið fyrir næsta deildarfund og voru langflestir fylgjandi því.
Ingjaldur Hannibalsson kom á fundinn undir þessum lið. Hann sýndi uppdrátt af fyrirhuguðum framkvæmdum vegna háskólatorgs og tengingum við næstu hús. Hann lýsti því hvaða starfsemi byggingarnar myndu hýsa, kostnaði við framkvæmdirnar og hvernig þær yrðu fjármagnaðar. Fundarmenn höfðu margs að spyrja.