Dagskrá
Föstudaginn 19. nóvember 2004 kl. 12.30 var haldinn fundur í verkfræðideild í innri salnum á matstofunni í Tæknigarði. Mætt voru Sigurður Brynjólfsson, Sigurður Erlingsson, Anna Ingólfsdóttir, Anna Soffía Hauksdóttir, Birgir Hrafnkelsson, Birgir Jónsson, Bjarni Bessason, Fjóla Jónsdóttir, Guðmundur R. Jónsson, Helgi Þorbergsson, Hjálmtýr Hafsteinsson, Jóhann P. Malmquist, Jóhannes R. Sveinsson, Jón Atli Benediktsson, Jónas Elíasson, Magnús Már Halldórsson, Oddur Benediktsson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Jensson, Páll Valdimarsson, Ragnar Sigbjörnsson, Sigurður M. Garðarsson, Tómas P. Rúnarsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Kenneth Breiðfjörð, Jóhannes Þór Ágústarson, Unnar Steinn Sigtryggsson og Hildur Jóna Friðriksdóttir. Þá sátu fundinn þeir Kristinn Andersen og Valdimar K. Jónsson.
Forföll boðuðu Ebba Þóra Hvannberg og Helgi Þór Ingason.
Kennarar í leyfi voru Egill B. Hreinsson, Jón Tómas Guðmundsson, Júlíus Sólnes, Sigfús Björnsson, Sven Þ. Sigurðsson, Trausti Valsson og Vilhjálmur Þór Kjartansson.
Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt án athugasemda.
Fjölga mun í deildinni á næstu vikum og mánuðum því allar skorir hafa auglýst eftir kennurum. Þá hefur verið samþykkt að ráða viðbótarmann á skrifstofu deildarinnar. Sá myndi væntanlega sinna kynningarmálum.
Deildarforseti sagði frá heimsókn menntamálaráðherra til deildarinnar í síðasta mánuði og aðdraganda þess.
Verkfræðistofnun heldur ársfund sinn á föstudaginn kemur. Iðnaðarráðherra mun ávarpa fundinn.
Forsvarsmaður ParisTech, sem er samtök ýmissa tækniháskóla á Parísarsvæðinu, kemur til landsins eftir miðja næstu viku til að kynna samtökin og ræða samskipti við verkfræðideild. Hann mun flytja hér fyrirlestur á föstudaginn kemur.
Vefsíða deildarinnar hefur verið tekin í gegn. Forseti hvatti deildarmenn til að kynna sér hana.
Starfið var auglýst til þriggja ára, með möguleika á framlengingu. Umsækjendur um starfið voru þrír en einn dró umsókn sína til baka og voru þá eftir þeir Henrik Aanæs og Sveinn Ólafsson. Dómnefnd skipuðu þeir Jón Atli Benediktsson, formaður, Kristinn Andersen og Ragnar Hlynur Jónsson. Formaður dómnefndar gerði grein fyrir auglýsingu starfsins, störfum dómnefndar og niðurstöðu dómnefndarálitsins sem var á þá leið að báðir umsækjendur væru hæfir til að gegna lektorsstarfi við r&t. Formaður r&t sagði frá umfjöllun skorarfundar um álitið en þar var samþykkt einróma að mæla með ráðningu Henriks frá 1. janúar nk. Talsverðar umræður urðu um málið og margar fyrirspurnir. Lyktir atkvæðagreiðslu urðu þær að Henrik hlaut 14 atkvæði, Sveinn 3 og 5 skiluðu auðu.
Einn umsækjandi var um starfið, Símon Ólafsson. Dómnefnd skipuðu Júlíus Sólnes, formaður, Jóhannes R. Sveinsson og Páll Einarsson. Jóhannes R. Sveinsson gerði grein fyrir álitinu í fjarveru hinna tveggja. Dómnefndin komst að þeirri niðurstöðu að Símon væri hæfur til að gegna starfi sérfræðings við Háskóla Íslands. Nokkrar umræður urðu um málið en að þeim loknum var samþykkt einróma, með 20 atkvæðum, að leggja til að Símon yrði ráðinn.
Deildarforseti fór yfir stöðuna. Fjárhagsstaðan er mjög góð um þessar mundir, enda hefur deildin ekki ráðið í fastar stöður í nokkurn tíma. Á þessu ári verður ráðið í nokkur störf, eins og áður kom fram. Að auki er stúdentum að fækka lítið eitt og er því viðbúið að hagur deildarinnar versni á næsta ári. Þá vék deildarforseti að breyttri stöðu deildar vegna samkeppni við HR/Tækniháskólann. Hann gaf síðan orðið laust. Miklar umræður urðu um þessi efni og tóku flestir fundarmenn til máls.