92. deildarfundur verkfræðideildar Yfirlitssíða

Dagskrá

92. deildarfundur verkfræðideildar var haldinn fimmtudaginn 13. maí 2004 kl. 20:20 í Tæknigarði.

Mættir voru:

Kennarar: Anna Soffía Hauksdóttir, Birgir Hrafnkelsson, Bjarni Bessason, Halldór Guðjónsson, Helgi Þór Ingason, Hjálmtýr Hafsteinsson, Jóhann P. Malmquist, Jóhannes R Sveinsson, Jón Atli Benediktsson, Jón Tómas Guðmundsson, Jónas Elíasson, Magnús Már Halldórsson, Magnús Þór Jónsson, Oddur Benediktsson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Jensson, Sigurður Brynjólfsson, Sigurður Erlingsson, Sigurður M. Garðarsson, Sven Þ. Sigurðsson, Tómas P. Rúnarsson, Valdimar K. Jónsson.
Fulltrúar stúdenta: Kenneth Breiðfjörð, u&b, Jóhannes Þór Ágústarson, u&b, Margrét O. Ásgeirsdóttir v&i, Hulda Hallgrímsdóttir, v&i, Andri H. Kristinsson, r&t, Hildur Einarsdóttir, r&t, Einar Bjarni Halldórsson, tölvunarfræði, Hildur Jóna Friðriksdóttir, tölvunarfræði.

Kennarar í leyfi voru: Egill B. Hreinsson, Fjóla Jónsdóttir og Sigfús Björnsson.

Helgi Þorbergsson tilkynnti veikindi Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt án athugasemda.

2. Mál til kynningar

Engin mál til kynningar.

3. Framtíðarsýn deildar – Rekstrarumhverfi

Á deildarfundi verkfræðideildar þann 4. febrúar 2004 var samþykkt tillaga um stofnun fimm manna nefndar kennara við verkfræðideild til að koma með tillögur um framtíðarsýn verkfræðideildar. Þann 16. febrúar skipaði deildarforseti eftirtalda kennara í nefndina:

Allir nefndarmenn, að Önnu Soffíu undanskilinni, skrifuðu undir greinargerð nefndarinnar sem send hafði verið deildarfundarmönnum fyrir fundinn.

Formaður nefndarinnar gerði grein fyrir niðurstöðum greinargerðar nefndarinnar um framtíðarsýn verkfræðideildar Háskóla Íslands.

Niðurstaða nefndarinnar er sú, að breytinga sé þörf í rekstrarfyrirkomulagi verkfræðideildar Háskóla Íslands ef deildin hefur í hyggju að vera:

i) samkeppnishæf við erlenda tækniháskóla.
ii) samkeppnishæf við innlenda aðila um nemendur.
iii) fær um að laða til sín besta starfsfólkið á hverjum tíma.

Samkvæmt auglýstri dagskrá voru umræður um greinargerð nefndarinnar á eftir næsta dagskrárlið.

4. Á að innheimta skólagjöld við (verkfræðideild) Háskóla Íslands?

Deildarforseti gaf orðið laust. Miklar umræður urðu um það hvort óska ætti eftir heimild frá stjórnvöldum til handa verkfræðideild til að taka upp skólagjöld ef deildin ákvæði slíkt. Miklu fleiri lýstu sig andvíga skólagjöldum en þeir sem voru hlynntir þeim.

Nemendur í verkfræðideild eru mótfallnir öllum hugmyndum um skólagjöld við deildina svo og almennum fjöldatakmörkunum nýnema og lögðu fulltrúar þeirra á deildarfundi eftirfarandi „Ályktun til deildarfundar” sem þeir óskuðu eftir að yrði bókuð:

„Ályktun til deildarfundar

Við nemendur í verkfræðideild höfum samþykkt eftirfarandi ályktun til bókunar á deildarfundi verkfræðideildar þann 13. maí 2004.

Nemendur í verkfræðideild eru mótfallnir öllum hugmyndum um skólagjöld við deildina svo og almennum fjöldatakmörkunum nýnema. Við teljum að með skólagjöldum og fjöldatakmörkunum sé valin röng leið til að ná fram auknu fjármagni til reksturs deildarinnar auk þess sem sú ákvörðun myndi skerða jafnrétti nemenda til náms og auka fjölda nemenda sem myndi heldur kjósa ókeypis skóla í samkeppnislöndum okkar.

Við fögnum allri umræðu um aukið sjálfstæði verkfræðideildar innan háskólans og teljum að með því móti megi ná fram aukinni hagræðingu í rekstri sem myndi skila sér til nemenda í formi betri aðstöðu og kennslu auk þess sem samkeppnishæfni deildarinnar myndi batna til muna. Einnig mætti skoða fleiri leiðir til að auka hagræðingu og nýtni í námi við deildina, svo sem reglur um lágmarksnámsframvindu nemenda eða takmarkanir í einstaka námskeið.

Verkfræðinemar skora því á deildarfund verkfræðideildar og háskólafund að hafna alfarið upptöku skólagjalda og fjöldatakmarkana við deildina”.

Fram kom m.a. hjá þeim sem töluðu gegn skólagjöldum að Háskólinn ætti að láta reyna á aðrar leiðir en skólagjöld til að auka fjárveitingar til (verkfræðideildar) Háskólans, t.d. að stjórnvöld hættu að draga skráningargjöld frá fjárveitingum til Háskólans og að „Einkaleyfisgjaldið” yrði fellt niður.

Þá væri verkfræðideild í samkeppni við aðra háskóla í nágrannalöndunum sem ekki tækju skólagjöld og okkar nemendur færu þangað ef verkfræðideild tæki upp skólagjöld.

Þeir sem lýstu sig hlynnta skólagjöldum töldu að samkeppnin væri frekar ríkjandi hvað varðaði gæði en verð, sbr. samkeppni ýmissa erlendra háskóla.

Umræður héldu áfram og voru snarpar.

Páll Jensson var hlynntur skólagjöldum og óskaði eftir að svohljóðandi tillaga þar um yrði borin undir atkvæði:

„Verkfræðideild óskar eftir heimild til að leggja á skólagjöld enda renni þau óskipt til verkfræðideildar”.

Tillagan var felld með þorra atkvæða.

Þá var borin undir atkvæði tillaga þeirra sem voru andvígir skólagjöldum og Valdimar K. Jónsson var upphafsmaður að, svohljóðandi:

„Deildarfundur verkfræðideildar leggst gegn því að lögð verði á skólagjöld við Háskóla Íslands og hvetur rektor til að leita annarra leiða til að leysa fjárhagsvanda skólans”.

Tillagan var samþykkt með þorra atkvæða.

Umræða kom upp um það hvort aftur þyrfti að taka upp aðgangstakmarkanir eða forkröfur í einni eða annarri mynd við deildina. Talsverðar umræður urðu um það hvort takmarka ætti aðgang eða ekki. Eftirfarandi tillaga var samþykkt með þorra atkvæða:

„Deildarfundur felur deildarforseta að skipa nefnd til að skoða forkröfur, aðagangstakmarkanir og reglur um námsframvindu nemenda við deildina”.

Margrét O. Ásgeirsdóttir, einn af fulltrúum nemenda, lagði áherslu á að fulltrúi nemenda yrði í nefndinni.

5. Framtíðarsýn deildar – Rekstrarumhverfi: Umræður um greinargerð nefndar

Miklar umræður urðu um greinargerð nefndarinnar og sýndist sitt hverjum. Flestir þeirra sem tóku til máls lýstu sig samþykka að stefna að framtíðaruppbyggingu verkfræðideildar í Vatnsmýrinni í fyrirhuguðum Vísindagörðum þar.

Rætt var um framhaldsmeðferð málsins. Fram kom tillaga um að vísa málinu til skora. Var það samþykkt með þorra atkvæða.

6. Önnur mál

Engin önnur mál.

Fundi slitið kl. 14:15
Jón Guðmar Jónsson, fundarritari