
Dagskrá
Miðvikudaginn 21. apríl 2004 var haldinn fundur í verkfræðideild í innri matstofunni í Tæknigarði. Fundur var settur kl. 12.30. Mætt voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Hrafnkelsson, Birgir Jónsson, Bjarni Bessason, Ebba Þóra Hvannberg, Halldór Guðjónsson, Helgi Þorbergsson, Helgi Þór Ingason, Jóhann P. Malmquist, Jóhannes R. Sveinsson, Jón Atli Benediktsson (kom kl. 13:20), Jón Tómas Guðmundsson, Jónas Elíasson, Magnús Már Halldórsson, Magnús Þór Jónsson (kom kl. 12:54), Oddur Benediktsson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Jensson, Páll Valdimarsson, Sigurður Erlingsson, Sigurður M. Garðarsson, Trausti Valsson, Valdimar K. Jónsson, Tómas P. Rúnarsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Kenneth Breiðfjörð, Hildur Jóna Friðriksdóttir, Sveinbjörn Pétur Guðmundsson og Andri Kristinsson.
Forföll boðuðu Guðmundur R. Jónsson, Hjálmtýr Hafsteinsson og Ragnar Sigbjörnsson.
Kennarar í leyfi voru Egill B. Hreinsson, Fjóla Jónsdóttir og Sigfús Björnsson.
Fundarritari var Pálmi Jóhannesson. Þetta gerðist:Samþykkt án athugasemda.
Deildarforseti sagði frá bréfi sem hann sendi háskólaráði í mars, eftir umræður í deildarráði. Í bréfinu kom fram að deildin legðist gegn aðgangstakmörkunum á haustmisseri 2004.
Háskólafundur mun ræða málið 21. maí nk. og hefur verið óskað eftir því að deildir taki afstöðu til málsins. Deildarforseti reifaði stöðu mála og gaf síðan orðið þeim Oddi Benediktssyni og Páli Jenssyni sem höfðu framsögu.
Oddur lagði fram eftirfarandi tillögu:
Verkfræðideild bregst við ónógri fjárveitingu til rekstrar deildarinnar með því að takmarka nýinnritun í deildina. Deildarráði er falið að setja viðhlítandi reglur um takmörkun á fjölda nemenda við nýinnritun í deildina.
Oddur rakti því næst hvernig aðstæður háskóla eru til að fjármagna starfsemi sína, bæði hér heima og erlendis. Í tengslum við þetta nefndi hann að aðgangur að meistaranámi væri of rúmur þar sem deildin setti meðaleinkunnina 6,0 sem lágmark fyrir inngöngu í meistaranám en um 95% stúdenta ná þeirri einkunn.
Páll Jensson lýsti yfir andstöðu við aðgangstakmarkanir en stuðningi við skólagjöld; stefnan væri að koma sem flestum til verkfræðimenntunar, því ætti aðgangur að vera frjáls, stefnan væri líka að halda uppi gæðum og bæta þau, til þess þyrfti að innheimta skólagjöld. Páll lagði til að deildin óskaði eftir heimild til að leggja á skólagjöld sem rynnu beint til deildarinnar.
Nú hófust miklar umræður um skólagjaldamálið og tóku flestir fundarmanna til máls. Virtust álíka margir með og móti skólagjöldum og stór hópur hafði ekki gert upp hug sinn til málsins.
Andstæðingar skólagjalda bentu á að verkfræðideild ætti í samkeppni við evrópska háskóla þar sem skólagjöld tíðkuðust ekki. Ef deildin tæki upp skólagjöld væri hún sennilega að hrekja allmarga stúdenta til náms erlendis og hefði sennilega ekki úr meiru að spila því ríkið myndi lækka fjárveitingu sem svaraði til innheimtra skólagjalda.
Fylgjendur skólagjalda bentu á að deildin hefði náð að halda sléttu í fjármálum með því að ráða ekki í laus störf og spara í tækjakaupum. Deildin væri í nauðvörn og ætti að keppa í gæðum kennslunnar, ekki verði.
Ekki virtist hljómgrunnur fyrir aðgangstakmörkunum, þó töldu stúdentar það illskárri kost en að setja á skólagjöld, aðstaðan myndi ekki batna með skólagjöldum en hún gerði það með færri nemendum.
Að þessum umræðum loknum var bent á að skýrsla um framtíðarstefnu verkfræðideildar yrði lögð fram í lok mánaðarins og var gerð dagskrártillaga um að afgreiðslu á tillögum þeirra Odds og Páls yrði frestað þar til á næsta deildarfundi og þær þá betur ræddar í tengslum við skýrsluna. Tillagan um frestun var samþykkt samhljóða.