90. deildarfundur verkfræðideildar, framhald Yfirlitssíða

Dagskrá

Miðvikudaginn 4. febrúar 2004 var fram haldið í innri matstofu Tæknigarðs deildarfundi verkfræðideildar, sem frestað var föstudaginn var. Fundur var settur kl. 12.30. Mætt voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Birgir Jónsson, Bjarni Bessason, Egill B. Hreinsson, Halldór Guðjónsson, Helgi Þór Ingason, Jóhann P. Malmquist, Jóhannes R. Sveinsson, Jón Atli Benediktsson, Jón Tómas Guðmundsson, Jónas Elíasson, Júlíus Sólnes, Magnús Már Halldórsson, Magnús Þór Jónsson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Jensson, Páll Valdimarsson, Sigurður Erlingsson, Sigurður M. Garðarsson, Sven Þ. Sigurðsson, Trausti Valsson, Valdimar K. Jónsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Ari Björnsson, Einar Bjarni Halldórsson, Guillermo Cornejo og Hrefna Lind Ásgeirsdóttir.

Forföll: Anna Soffía Hauksdóttir, Ebba Þóra Hvannberg, Guðmundur R. Jónsson, Helgi Þorbergsson og Vilhjálmur Þór Kjartansson. Rannsóknamisseri: Sigfús Björnsson. Barnsburðarleyfi: Fjóla Jónsdóttir.
Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.

Þetta gerðist:

8. Verkfræðiháskóli - framtíðarsýn

Deildarforseti sýndi í upphafi fundarins glærur með ýmsum staðreyndum um verkfræðideild, svo sem þróun innritana á 10 ára tímabili, fjölda brautskráðra á sama tíma, hlutföll kynja og vaxandi þátt framhaldsnáms. Þá drap hann á helstu stefnumál deildarinnar og hugmyndir um vísindagarða í Vatnsmýri. Að loknum þessum inngangi gaf hann Sigurði M. Garðarssyni orðið. Sigurður reifaði hugmyndina um stofnun verkfræðiháskóla en drög að framtíðarsýn og verkfræðiháskóla höfðu verið send fundargestum. Þar segir meðal annars:

Stofnaður verður Verkfræðiháskóli Íslands. Hann verður fjárhagslega og stjórnunarlega sjálfstæður en getur verið annaðhvort innan eða utan Háskóla Íslands. Hann verður myndaður af verkfræðideild Háskóla Íslands, hluta raunvísindadeildar (stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði) og Tækniháskóla Íslands. Hann verður staðsettur í fyrirhuguðum Vísindagörðum í Vatnsmýri og þangað munu einnig flytjast rannsóknarstofnanir atvinnuveganna. Samkeppnisumhverfi Verkfræðiháskólans verður skilgreint sem aðrir erlendir tækniháskólar. Stefnt verður að því að fyrirtæki geti komið sér fyrir í Vísindagörðunum til að skapa öfluga tengingu milli atvinnulífsins og Verkfræðiháskólans.

Um þetta efni urðu miklar umræður og tóku flestir fundargesta til máls. Hugmyndin um verkfræðiháskóla hefur áður verið rædd og allir lýstu sig fylgjandi því að málið yrði kannað. Sumir töldu heppilegast að nýr verkfræðiháskóli yrði innan vébanda Háskóla Íslands, aðrir töldu að verkfræðháskólinn ætti að vera alveg sjálfstæður. Varpað var fram mörgum hugmyndum um samsetningu nýja skólans. Að loknum umræðum var borin upp tillaga sem var samþykkt samhljóða, með nokkrum breytingum. Tillagan hljóðaði svo í endanlegri gerð:
Deildarfundur felur deildarforseta að skipa 5 manna nefnd kennara við verkfræðideild til að skoða kosti og galla þess að stofna Verkfræðiháskóla Íslands. Nefndin byggi vinnu sína á ofangreindri framtíðarsýn en skoði einnig aðrar útfærslur. Nefndin hafi samráð við alla kennara deildarinnar, t.d. með því að boða til hugarflugsfundar um framtíðarsýn deildarinnar. Nefndin ræði óformlega við hagsmunaaðila til að kanna hug þeirra til stofnunar Verkfræðiháskóla. Nefndin mun taka saman niðurstöður sínar í formi stuttrar skýrslu þar sem fjallað verður um eftirfarandi:
  1. Óformleg viðbrögð hagsmunaaðila við hugmyndinni
  2. Hugsanlegar útfærslur á Verkfræðiháskóla ásamt kostum og göllum
  3. Uppfærða framtíðarsýn á stofnun Verkfræðiháskóla Íslands sem tekur mið af vinnu nefndarinnar
Nefndin á að skila af sér fyrir lok apríl 2004.

9. Önnur mál

9.1 Rannsóknastig

Sigurður Erlingsson óskaði eftir að deildin beitti sér fyrir því að verkfræðistofnun kæmi upp ritröð og birti í henni skýrslur kennara og sérfræðinga sem nú liggja óbirtar í fórum stofnunarinnar og teljast þá ekki með í punktakerfinu.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 13.35.