
Dagskrá
Föstudaginn 30. janúar 2004 var haldinn deildarfundur í verkfræðideild í innri matstofunni í Tæknigarði. Fundur var settur kl. 12.30. Mætt voru Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Anna Soffía Hauksdóttir, Birgir Jónsson, Bjarni Bessason, Guðmundur R. Jónsson, Halldór Guðjónsson (fór af fundi kl. 13.00), Helgi Þór Ingason, Jóhann P. Malmquist, Jóhannes R. Sveinsson, Jón Atli Benediktsson (fór af fundi kl. 13.00), Jón Tómas Guðmundsson, Jónas Elíasson, Júlíus Sólnes, Magnús Már Halldórsson, Magnús Þór Jónsson, Oddur Benediktsson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Jensson, Páll Valdimarsson, Ragnar Sigbjörnsson, Sigurður Erlingsson, Sigurður M. Garðarsson, Sven Þ. Sigurðsson, Trausti Valsson, Valdimar K. Jónsson, Vilhjálmur Þór Kjartansson, Ágúst Guðmundsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Ari Björnsson, Einar Bjarni Halldórsson, Guillermo Cornejo, Sveinbjörn Jónsson, Hrefna Lind Ásgeirsdóttir og Þorlákur Ómar Guðjónsson.
Forföll: Ebba Þóra Hvannberg, Helgi Þorbergsson og Hjálmtýr Hafsteinsson. Rannsóknamisseri: Egill B. Hreinsson og Sigfús Björnsson. Barnsburðarleyfi: Fjóla Jónsdóttir.
Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt án athugasemda.
Verkfræðideild fékk 314 milj. kr. fjárveitingu árið 2003, þar af runnu 10,2 til verkfræðistofnunar. Deildin átti í árslok 2003 34 milj. í afgang; nokkrir háir reikningar, m.a. frá Reiknistofnun, eru þó ógreiddir. Þessa góðu stöðu má rekja til fjölgunar stúdenta síðastliðin ár. Deildin fær 335 miljónir í fjárveitingu 2004.
Deildarforseti lagði fram tölur um fjölda kandídata, fjölda nemenda og árangur nemenda á 1. ári að loknu haustmisseri.
Skipunartími senats deildarinnar rann út nú í janúar. Deildarforseti óskaði eftir tilnefningum í nýtt senat.
Deildin hefur tekið upp áskrift að rafrænum ritum IEEE og mun taka upp áskrift að rafrænum útgáfum ýmissa rita í stað pappírsútgáfa.
Deildarforseti mun á næstunni taka starfsmannasamtöl við kennara deildarinnar og annað fastráðið starfsfólk. Hann lýsti því í hverju starfsmannasamtöl fælust og hver væri tilgangurinn með þeim.
Deildarforseti skoraði á fundarmenn að skila skýrslum um rannsóknir sínar sem best og ítarlegast. Mikið væri í húfi fyrir deildina.
Deildarforseti sagði frá umræðum um stefnumótun í deildarráði en þeim umræðum hefur nú verið vísað til skora.
Innan nokkurra ára gæti rofað til í húsnæðismálum deildarinnar, rætt er um að tengibyggingin milli VR-II, VR-I og VR-III verði reist upp úr 2007.
Nú líður að úttekt á verkfræðideild. Hugsanlega yrði ABET stofnunin fengin til þess aftur, eins og 1993. Deildarforseti leggur til að úttektin verði gerð á næsta ári.
Stungið var upp á Júlíusi Sólnes sem fulltrúa deildar í dómnefnd um framgang Símonar Ólafssonar í starf fræðimanns á verkfræðistofnun. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Formaður dómnefndar, Magnús Þór Jónsson gerði grein fyrir áliti dómnefndarinnar. Auk Magnúsar sátu þeir Helgi Tómasson og Sven Þ. Sigurðsson í dómnefndinni. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að Birgir væri hæfur til að gegna starfi lektors við verkfræðideild. Formaður v&i lýsti einróma samþykki skorarfundar við dómnefndarálitið á fundi 15. janúar sl. og þar var þess óskað að Birgir yrði ráðinn frá 1. september 2003. Deildarfundur samþykkti með 23 atkvæðum að leggja til að Birgir yrði ráðinn í starfið, 1 seðill var auður.
Sigurður Brynjólfsson deildarforseti lýsti því yfir að hann gæfi kost á sér til endurkjörs og rakti helstu mál sem hann myndi beita sér fyrir á næsta kjörtímabili. Ekki komu fram uppástungur um aðra í embættið og var þá gengið til atkvæða. Úrslit urðu þau að Sigurður Brynjólfsson hlaut 28 atkvæði, Anna Soffía Hauksdóttir 1 og 1 seðill var auður.
Núverandi varadeildarforseti, Sven Þ. Sigurðsson, baðst undan endurkjöri. Stungið var upp á Sigurði Erlingssyni í embættið. Úrslit kjörsins urðu þau að Sigurður hlaut 22 atkvæði, Anna Soffía Hauksdóttir 1, Helgi Þorbergsson 2, Jóhannes R. Sveinsson 1, Oddur Benediktsson 1, Sven Þ. Sigurðsson 1, auðir seðlar voru 2.
Drög að reglunum voru send út með fundarboði og gerði Jóhannes R. Sveinsson stuttlega grein fyrir þeim.
Miklar umræður urðu um drögin og komu fram þrjár breytingartillögur. Kosið var um hverja breytingartillögu fyrir sig sem hér segir.
Í 12. grein var lagt til að setningin
"Um leið og ritgerð er lögð fram til varnar skal jafnframt leggja fram staðfest yfirlit..."hljóðaði
"Um leið og ritgerð er lögð fram skal leggja fram staðfest yfirlit..."
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Í 10. grein var lagt til að setningin
"Auk umsjónarkennara skal a.m.k. einn úr meistaraprófsnefnd hafa meistarapróf eða hærri prófgráðu í verkfræði eða tölvunarfræði eftir því sem við á."yrði orðuð
Auk umsjónarkennara skal a.m.k. einn úr meistaraprófsnefnd vera verkfræðingur eða tölvunarfræðingur með meistarapróf eða hærri prófgráðu, eftir því sem við á.
Þessi tillaga var samþykkt með þorra atkvæða gegn einu.
Í 12. grein var lagt til að málsgreinin
"Ritgerð, sem stenst kröfur verkfræðideildar að mati meistaraprófsnefndar, skal gefin einkunn eftir gæðum ritgerðar sem hér segir “Staðið með ágætum” “Staðið með prýði” “Staðið”
skyldi orðuð
Ritgerð, sem stenst kröfur verkfræðideildar að mati meistaraprófsnefndar, skal gefin einkunn í heilum tölum frá 6-10.
Þessi tillaga var samþykkt með 15 atkvæðum gegn 5.
Reglurnar í heild með þessum breytingum voru síðan bornar upp og samþykktar samhljóða.
Klukkan var nú þrjár mínútur gengin í þrjú og samþykktu fundarmenn að fresta fundi og taka upp umræður um þennan lið á framhaldsfundi miðvikudaginn 4. febrúar næstkomandi.