89. deildarfundur verkfræðideildar Yfirlitssíða

Dagskrá

89. deildarfundur verkfræðideildar, var haldinn fimmtudaginn 19. júní 2003 og hófst kl. 13:15 í stofu 157.

Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Sven Þ. Sigurðsson, Bjarni Bessason, Jóhann P. Malmquist, Páll Jensson, Páll Valdimarsson, Trausti Valsson, Birgir Jónsson, Ebba Þóra Hvannberg, Halldór Guðjónsson, Helgi Þorbergsson, Hjálmtýr Hafsteinsson, Jóhannes R. Sveinsson, Ólafur Pétur Pálsson, Sigurður Magnús Garðarsson, Jón Tómas Guðmundsson og Vilhjálmur Þór Kjartansson. Fulltrúar aðjúnkta Þorsteinn Þorsteinsson og Kristján Þór Finnsson. Fulltrúi nemenda Sigurður Ari Sigurjónsson. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.

Deildarforseti bauð Sigurð Magnús Garðarsson, nýráðinn dósent, velkominn til starfa.

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt án athugasemda.

2. Til kynningar

2.1 Nemendaskráningar/Nýnemar

Deildarforseti skýrði frá nýnematölum í einstökum skorum fyrir næsta skólaár.

2.2 Fjármál
Deildarforseti skýrði frá fjárhagstöðu deildar og einstakra skora, en fyrstu upplýsingar um stöðu eru að birtast.

2.3 Brautskráning

Brautskráning er 21. júní næstkomandi. En nú brautskráist mesti fjöldi frá deildinni frá upphafi.

3. Framgangur Helga Þórs Ingasonar í starf dósents

Deildarforseti gaf Páli Jenssyni dómnefndarmanni orðið í fjarveru Péturs K. Maack, sem var formaður dómnefndar, en hann var staddur erlendis. Auk þeirra tveggja var Ragnhildur Geirsdóttir, verkfræðingur, í nefndinni.

Páll Jensson gerði grein fyrir dómnefndarálitinu. Niðurstöður dómnefndar voru þær, að Helgi Þór Ingason, væri hæfur til að gegna starfi dósents við verkfræðideild Háskóla Íslands.

Páll Valdimarsson gerði síðan grein fyrir niðurstöðum skorar. Á skorarfundi véla- og iðnaðarverkfræðiskorar fór atkvæðagreiðsla þannig, að samþykkt var með sjö samhljóða atkvæðum að leggja til að dr. Helgi Þór Ingason hljóti framgang í starf dósents við verkfræðideild Háskóla Íslands.

Deildarforseti gaf orðið laust. Enginn óskaði að taka til máls.

Þá var gengið til atkvæðagreiðslu. Hún fór þannig að 15 sögðu já, nei sögðu tveir en engir auðir seðlar.

4. Önnur mál

Engin önnur mál.

Fundi slitið kl. 14:45.
Jón Guðmar Jónsson